Borgarastyrjöld braust út á Spáni árið 1936 þegar fasísk íhaldsöfl — falangistarnir svokölluðu — risu upp gegn lýðræðislega kjörinni vinstristjórn landsins. Styrjöldin stóð yfir í þrjú ár, kostaði um hálfa milljón manns lífið og hefur haft afgerandi áhrif á stjórnmál, sögu og menningu Spánar fram til dagsins í… [Lesa meira]
Logandi smádýr og lolkettir
Alnetið er undarlegur staður. Á sakleysislegum spássitúr mínum um einn helsta höfuðstað þess, Fjasborg, urðu skyndilega á vegi mínum kettir með rakettur á bakinu. Svo undarlegur staður er Alnetið að þetta í sjálfu sér var ekki undarlegt, ekki á þessu póstlolkattaskeiði þar sem 13. aldar handritalýsingar af köttum eru hafðar til sambærilegra hlátraskalla og hin margvíslegustu kattamyndbönd í þeirri miklu… [Lesa meira]
Franska læðan Félicette, fyrsti og eini kötturinn í geimnum
Allir þekkja sovésku tíkina Laiku sem fór á sporbraut um Jörðu fyrst Jarðarbúa og sömuleiðis höfum við flest heyrt sögur af geimferðum fleiri kvikinda, frá ávaxtaflugum til simpansa. En hvað með ketti — hafa þeir ekkert látið til sín taka á þessum vettvangi?
Jú, að sjálfsögðu. Reyndar hefur aðeins einn köttur gerst svo frægur að fara út í geim, og sá… [Lesa meira]
Hríðskotabyssu-beikon í boði forsetaframbjóðandans Ted Cruz
Ted Cruz, öldungardeildarþingmaður frá Texas, keppir við Donald Trump, Jeb Bush og fleiri repúblíkana um að verða forsetaefni flokksins í kosningunum 2016. Hér framreiðir hann beikon með Texas-aðferð. Hann steikir það á brennandi heitu skafti… [Lesa meira]
Tolstoj hjólaði allan daginn og var sama hvað öllum fannst
Mikið hjólreiðaæði reið yfir heimsbyggðina um og upp úr 1890 þegar reiðhjól með keðjudrifi komu fyrst fram. Rússland var ekki undanskilið þessum tíðaranda og margir Rússar eignuðust sín fyrstu reiðhjól um þetta leyti. Meðal þeirra var rithöfundurinn mikli Lev Tolstoj sem fékk reiðhjól að gjöf frá nýstofnuðum samtökum reiðhjólaunnenda í Moskvu.
Tolstoj hafði þá nýlega misst yngsta son sinn sem var bara sjö… [Lesa meira]
Kettir eru kolómögulegir njósnarar — jafnvel hjá CIA
Á miðjum sjöunda áratugnum hafði bandaríska leyniþjónustan CIA mikinn áhuga á einkafundum þjóðhöfðingja nokkurs í Asíu. Leyniþjónustumönnum á svæðinu gafst ekki tækifæri til að koma fyrir hlerunarbúnaði á skrifstofu hans en í skýrslu eins þeirra kom fram að þeir einu sem gátu farið frjálsir ferða sinna um skristofukynni þjóðhöfðingjans voru flækingskettir sem hann hafði mikið dálæti á.
Einhver snillingurinn heima í höfuðstöðvunum… [Lesa meira]
