Upprunalega „Misirlou“ lagið

Vídjó

Hér heyrum við upptöku af þjóðlaginu “Misirlou” (á tyrknesku: “Egypskt”) í flutningi Grikkjans Theodotos Demetriades.

Tetos Demetriades

Theodotos ,,Tetos” Demetriades.

 

Lag þetta á upptök sín í Litlu-Asíu. Ekki er vitað um aldur þess, en flutningur Demetriades í grískum rebetiko-stíl frá árinu 1927 er elsta… [Lesa meira]

„Hvað ef?“: Útvarpsþáttur um hjásögu

Bókin Making History, eftir Stephen Fry, segir frá ungum sagnfræðinema í Cambridge sem sendir getnaðarvarnapillu aftur í tímann í þeirri veiku von að faðir Hitlers gleypi hana og verði í kjölfarið ófrjór. Þegar sagnfræðineminn vaknar daginn eftir kemst hann að því að tilraun hans hafði heppnast. Afleiðingin varð aftur á móti önnur en hann hafði ætlað sér því að í stað Hitlers kom… [Lesa meira]

Messa í Hallgrímskirkju áður en hún var byggð

Prestur messar í Hallgrímskirkju, fljótlega eftir að hafist var handa við byggingu hennar. Mynd frá… [Lesa meira]

Litmyndir frá löngu horfnu Rússlandi

Þetta eru hundrað ára gamlar litmyndir rússneska ljósmyndarans Sergeis Mikhailovich Prokudin-Gorskii sem sýna á ótrúlegan hátt lífið í rússneska keisaradæminu í upphafi tuttugustu aldarinnar. Þær eru ómetanleg heimild um lífið á jaðarsvæðum hins víðfeðma ríkis á þessum tíma. Margir hafa eflaust séð myndirnar sem hér birtast á ýmsum bloggum á síðustu árum. En góð vísa er aldrei of oft kveðin og… [Lesa meira]

Hið sovéska “Let It Be”

Vídjó

Bítlarnir sendu frá sér lagið “Let It Be” árið 1970. Tveimur árum síðar varð það fyrsta bítlalagið sem fékk spilun í Sovétríkjunum. Kommúnistastjórn landsins hafði lengi álitið vestræna popptónlist siðspillandi og reynt eftir fremsta megni að vernda sovéska alþýðu frá slíkri úrkynjun.

 

Lagið varð strax gríðarlega vinsælt austan Járntjaldsins og brátt kom út stórskemmtileg… [Lesa meira]

Herstöðinni í Keflavík lokað haustið 2006

Hér sjáum við formlega lokunarathöfn herstöðvarinnar í Keflavík þann 30. september 2006. Todd Barkley flotaforingi tekur við bandaríska fánanum af Mark Laughton, síðasta höfuðsmanni stöðvarinnar.  Þarna lauk 55 ára samfelldri viðveru Bandaríkahers á Íslandi.

 

Ljósmynd eftir Sally Hodgson, af vef Evrópudeildar… [Lesa meira]