Ray Manzarek og Skrillex

Vídjó

Ray Manzarek, orgelleikari The Doors, lést í gær, 74 ára. Í fyrra mætti hann í stúdíóið hjá unga raftónlistarmanninum Skrillex og samdi lag með honum ásamt gítarleikaranum Robby Krieger.

 

Svipurinn á Manzarek þegar hann heyrir fyrst rafdanstónlist Skrillex er… [Lesa meira]

Joachim Witt: Gullni riddari þýsku nýbylgjunnar

Á 9. áratug síðustu aldar náði hin nýja þýska bylgja, eða Die Neue Deutsche Welle, talsverðum hæðum í poppheiminum. Margir muna eflaust vel eftir listamönnum á borð við Nenu („99 Luftballons“), überhipsterunum í Alphaville („Summer in Berlin“, „Big in Japan“) eða jafnvel spaugurunum í Trio („Da da da“).

 

Færri muna þó eftir furðufuglinum Joachim Witt, sem sló í gegn í Þýskalandi… [Lesa meira]

Kjarnorkusprengingar á Bikini, sumarið 1946

Vídjó

Hér er fréttamynd (newsreel) frá 1946 þegar Bandaríkin sprengdu kjarnorkusprengjur í tilraunaskyni á kóralrifinu Bikini á Kyrrahafi. Sumarið 1946 voru tvær sprengjur sprengdar á Bikini og var ýmsum úreltum herskipum fórnað til að kanna mótstöðu þeirra í slíkum ægilegum hamagangi.

 

Auk þess voru gerðar tilraunir með dýr til að skoða áhrif geislavirkni. 57 naggrísir, 109… [Lesa meira]

Kort af Reykjavík og nágrenni um 1909

Reykjavík var ekki stór um 1909 þegar þetta kort birtist í þýskri ferðabók um Norðurlöndin. Þetta eru örfáar götur. Smellið á kortið til að sjá stærri… [Lesa meira]

Magnað viðtal við Ingmar Bergman í bandarískum sjónvarpsþætti árið 1971

Vídjó

Sænski kvikmyndaleikstjórinn Ingmar Bergman (1918-2007) mætti árið 1971 í viðtal hjá Dick Cavett sem stjórnaði vinsælum þætti á áttunda áratugnum. Cavett ferðaðist til Svíþjóðar fyrir viðtalið.

 

Bergman fer yfir víðan völl og ræðir um barnæsku sína af hispursleysi og um lífið í Svíþjóð á uppvaxtarárunum. Hann segir til dæmis frá valdapíramídanum sænska: „Guð var á… [Lesa meira]

Hvíta eldingin: Danssnillingurinn og límsniffarinn Jesco White

Jesco White betur þekktur sem „Dansandi útlaginn“ er bandarískur skemmtikraftur, fjalladansari og költfígúra. Hann er hvað þekktastur í Bandaríkjunum fyrir að vera umfjöllunarefni heimildarmyndanna: Dancing Outlaw, Dancing Outlaw II: Jesco Goes to Hollywood og The Wild and Wonderful Whites of West Virginia. Árið 2009 var einnig gerð leikin mynd um ævintýri Jesco, ber hún heitið White Lightnin’.

 

Jesco fæddist í Bandytown,… [Lesa meira]