Íslenskt já takk, eða ha?: Íslensk popplög sem eru ekki íslensk

Síðustu ár hafa Íslendingar verið að vakna upp við vondan draum. Fjölmargar af hinum íslensku dægurlagaperlum frá sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar eru alls ekki íslensk lög, heldur þýddar og staðfærðar útgáfur af erlendum lögum! Íslendingar eru t.d. sérlega lunknir við að breyta ítölskum dægurlögum í íslensk… [Lesa meira]

Bílagæjar og skæspíur: Sænska raggaramenningin

„Orðið „Raggari“ er sænskt slanguryrði, sem upphaflega þýddi ökumaður, sem narrar ungar stúlkur upp í bíl sinn, en orðið hefur nú misst fyrri merkingu sína. Nú er það notað um uppreisnargjarna og ódæla unglinga.“ Svo er skrifað um hið sænska menningarfyrirbæri „raggara“ sem vakti athygli blaðamanns Alþýðublaðsins árið 1961.

 

Raggaramenningin er fylgifiskur þeirrar velmegunnar sem Svíar bjuggu við eftir heimsstyrjöldina síðari.… [Lesa meira]

Fljúgandi Sunda-lemúrinn

Í frumskógum Suðaustur-Asíu býr fljúgandi Sunda-lemúrinn. Þetta merkilega dýr er sérlega illa nefnt, því það getur ekki flogið og er auk þess ekki lemúr, enda búa lemúrar aðeins á Madagaskar.

 

Sunda-lemúrinn er spendýr af ætt kólúga og býr í trjánum. Hann sefur á daginn en fer á stjá að nóttu til og nærist þá á laufum, ávöxtum og blómum. Í stað þess… [Lesa meira]

Ljósmynd af stúlku, eftir Arnold Genthe

Autochrome ljósmynd í lit, frá tímabilinu 1911-1930. Myndin var tekin af prússneska-bandaríska ljósmyndaranum Arnold Genthe, en hann var framúrstefnumaður í litaljósmyndun á fyrri hluta 20.… [Lesa meira]

Barry Lyndon: Kvikmyndin sem var eins og málverk frá 18. öld

Kvikmyndin Barry Lyndon frá árinu 1975 er eitt af mörgum frábærum sköpunarverkum leikstjórans Stanley Kubrick. Hún er byggð á skáldsögu Williams Thackeray, The Luck of Barry Lyndon, og segir raunasögu ungs ævintýramanns á miðri 18. öld.

 

Við gerð myndarinnar notaði Kubrick nær eingöngu náttúrulega lýsingu. Upptökur fóru fram með sérlega ljósnæmum linsum sem þróaðar höfðu verið af geimvísindastofnuninni NASA fyrir Apollo tunglförin. Útkoman… [Lesa meira]

„Þetta er alvarleg myndlist“: Heimildarmynd um íslenskar myndasögur

Vídjó

Heimildarmyndin Íslenskar myndasögur eftir Halldór Carlsson var sýnd á RÚV árið 1999.  Fyrri hluti fyrir ofan og sá seinni fyrir neðan. (Via Dr.… [Lesa meira]