Stórkostlegir stríðshjálmar fyrri alda

Á árum endurreisnarinnar í Evrópu á 14.-16. öld komst það í tísku að klæðast skreyttum hjálmum og brynjum. Ríkir aðalsmenn kepptu um að vera hver öðrum glæsilegri í vígbúnaði og réðu því til sín járnsmiði, handverksmeistara og listamenn.

 

Lemúrinn birtir hér myndir af merkilegum stríðshjálmum frá þessu tímabili. Margir gripirnir eru stórkostleg… [Lesa meira]

Júlíus Birck: Danski kaupmaðurinn sem sprengdi sig í loft upp í Vestmannaeyjum

Þetta er óhugnanleg saga af hræðilegum atburði sem gerðist árið 1851 í Vestmannaeyjum. Danskur maður sprengdi sig í loft upp undir svokölluðum Skansaklettum.

 

Í meira en eina og hálfa öld hefur verið rekinn verslunarrekstur af einhverju tagi í Tanganum í Vestmannaeyjum. Um miðbik 19. aldar var danska myllusmiðnum Johan Julius Frederik Birck úthlutuð lóð á Strandveginum þar sem hann setti á… [Lesa meira]

Póstkort frá Hitler þegar hann var ungur hermaður

Á þessari mynd sjáum við Adolf Hitler ásamt öðrum þýskum hermönnum í fyrri heimsstyrjöldinni. Hann er lengst til hægri á myndinni.

 

Í desember 1916, þegar fyrri heimsstyrjöldin geisaði leitaði Adolf Hitler (1889-1945) bót meina sinna á sjúkrahús við Beelitz, skammt frá Berlin. Hann var þá ungur hermaður. Raunar má deila um þá fullyrðingu að Hitler hafi barist í fyrri heimsstyrjöldinni. Hann… [Lesa meira]

Deilan um skrúðgarðinn í Grjótaþorpi 1978: Mótmæli, skurðgrafa og ungbarn

Ungur maður frá Frakklandi bregður á það ráð að hindra skurð­gröfu með því að setjast niður með ungan son sinn í fang­inu. Hann reynir að stöðva nið­urrif lít­ils skrúðgarðs. 

 

Þann 31. maí 1978 vöknuðu íbúar Grjótaþorps upp við að stórri gröfu var ekið inn í hverfið til þess að rífa skúr í litlum skrúðgarði sem þeir höfðu útbúið.

 

Forsaga málsins var sú… [Lesa meira]

Barist um Arnarhól: Sagan af byggingu „monthúss“ Seðlabankans

Gríðarlegar deilur voru um byggingu höfuðstöðva Seðlabanka Íslands. Ýmsar teikningar voru lagðar fram og átti upphaflega að byggja stórhýsi bankans við tjarnarbakkann á Fríkirkjuvegi en á endanum var byggingunni fundinn staður við Arnarhól. Halldór Laxness lagðist gegn þeim áformum og kallaði eftir baráttu gegn slíkri „ábyrgðarlausri hégómadýrð“.

 

Seðlabanki Íslands var stofnaður sem sjálfstæð stofnun árið 1961. Deildi hann húsnæði sínu með… [Lesa meira]

Í Berlín fara allir í Photoautomat

Hver kannast ekki við þessar „retro“ sjálfsmyndir sem allir virðast koma með heim eftir ferðalag eða dvöl í Berlín? Þessi höfuðstaður Þýskalands og alls sem er svalt hefur nefnilega að geyma hina upprunalegu ljósmyndaklefa, eða Photoautomat, en þeir eru nú farnir að gera allt vitlaust um víða veröld.

 

Photoautomat-ævintýrið byrjaði sem áhugamál tveggja Berlínarbúa, þeirra Asger Doenst og Ole Kretschmann. Ljósmyndaklefarnir… [Lesa meira]