„Sumir fúlir, aðrir glaðir“: Bob Dylan í Laugardalshöll árið 1990

Í júní árið 1990 hjólaði mjósleginn og rytjulegur maður eftir Suðurlandsbraut og beygði niður að Laugardalshöll. Við fyrstu sýn leit hann líklega út eins og róni sem flækist stefnulaust um á fararskjótanum, eins og loftsteinn sem skýst um himingeimana án áfangastaðar. En þessi steinn sem valt niður brekkuna í átt að Höllinni var enginn annar en Bob Dylan, sem kom… [Lesa meira]

„Nú er ég ekki lengur mállaus“: Myndskeið með Helen Keller

Vídjó

Flestir kannast eflaust við Helen Keller, bandarísku konuna sem árið 1904 varð fyrsta daufblinda manneskjan sem lauk háskólaprófi og varð síðan frægur rithöfundur og fyrirlesari, sósíalisti og baráttukona.

 

Í þessu sjaldséða fréttamyndskeiði frá árinu 1930 sést Keller með kennara sínum Anne Sullivan, en það var með hennar hjálp sem Keller tókst að brjótast úr… [Lesa meira]

Ray Manzarek og Skrillex

Vídjó

Ray Manzarek, orgelleikari The Doors, lést í gær, 74 ára. Í fyrra mætti hann í stúdíóið hjá unga raftónlistarmanninum Skrillex og samdi lag með honum ásamt gítarleikaranum Robby Krieger.

 

Svipurinn á Manzarek þegar hann heyrir fyrst rafdanstónlist Skrillex er… [Lesa meira]

Joachim Witt: Gullni riddari þýsku nýbylgjunnar

Á 9. áratug síðustu aldar náði hin nýja þýska bylgja, eða Die Neue Deutsche Welle, talsverðum hæðum í poppheiminum. Margir muna eflaust vel eftir listamönnum á borð við Nenu („99 Luftballons“), überhipsterunum í Alphaville („Summer in Berlin“, „Big in Japan“) eða jafnvel spaugurunum í Trio („Da da da“).

 

Færri muna þó eftir furðufuglinum Joachim Witt, sem sló í gegn í Þýskalandi… [Lesa meira]

Kjarnorkusprengingar á Bikini, sumarið 1946

Vídjó

Hér er fréttamynd (newsreel) frá 1946 þegar Bandaríkin sprengdu kjarnorkusprengjur í tilraunaskyni á kóralrifinu Bikini á Kyrrahafi. Sumarið 1946 voru tvær sprengjur sprengdar á Bikini og var ýmsum úreltum herskipum fórnað til að kanna mótstöðu þeirra í slíkum ægilegum hamagangi.

 

Auk þess voru gerðar tilraunir með dýr til að skoða áhrif geislavirkni. 57 naggrísir,… [Lesa meira]

Kort af Reykjavík og nágrenni um 1909

Reykjavík var ekki stór um 1909 þegar þetta kort birtist í þýskri ferðabók um Norðurlöndin. Þetta eru örfáar götur. Smellið á kortið til að sjá stærri… [Lesa meira]