Argentavis magnificens: Stærsti fugl sögunnar var frá Argentínu

Argentavis magnificens eða hinn mikli argentínski fugl var gríðarstór fuglategund sem lifði fyrir um sex milljónum ára síðan á sléttum Argentínu og við rætur Andesfjallanna. Þetta er stærsta tegund fljúgandi fugls sem fundist hefur í heiminum.

 

Vænghaf fuglsins var um sjö metrar, hæð 170-200 cm og þyngd 70 kíló! Með öðrum orðum var argentavis ekki ósvipaður í stærð og lítil flugvél.… [Lesa meira]

Fórnarlömb vesturvígstöðvanna

Fyrri heimsstyrjöldin 1914-1918  kostaði níu milljónir manna lífið. Stríðið þurrkaði út heila kynslóð af ungum mönnum og var á þeim tíma mannskæðasta styrjöld sögunnar. Harðast var barist á vesturvígstöðvunum, þar sem risastórir herir Frakka, Breta, Þjóðverja og að lokum Bandaríkjamanna tókust á innan um stórskotahríð, sinnepsgas og vélbyssuhreiður.

 

Lemúrinn hefur áður birt litljósmyndir frá vesturvígstöðvunum eftir franska ljósmyndarann Jules… [Lesa meira]

Eitursvalir Ísfirðingar á þriðja áratugnum

Hefur ekki ungt fólk alltaf gaman af því að skemmta sér og klæða sig upp? Hvort sem það er í New York, Reykjavík eða á Ísafirði og hvort sem það er 2013 eða 1925.

 

Þessar myndir sýna ungt og glæsilegt fólk á Ísafirði, líklega um 1920-1930. Þær eru teknar úr safni Ingimundar Guðmundssonar (1893-1973), vélsmiðar og áhugaljósmyndara. Ingimundur flutti til Ísafjarðar frá… [Lesa meira]

Ólafur Gottskálksson, knattspyrnumaður frá Benín

Áhugamenn um skoska boltann ráku eflaust upp stór augu árið 1998 þegar ný útgáfa af hinum geysivinsælum fótboltamyndum frá ítalska fyrirtækinu Panini kom út. Því einhver ruglingur varð hjá liði Hibernian og íslenski markvörðurinn Ólafur Gottskálksson hafði breyst í knattspyrnumann frá ríkinu Benín í Afríku. Og hinn benínski Jean-Marc (Jimmy) Adjovi-Bocco hafði breyst í Oli Gottskálksson.

 

Myndirnar birtust á… [Lesa meira]

Lífið uppi á velli: Amerískar íbúðir og hafnabolti í herstöðinni í Keflavík

Vídjó

Árin líða og minningin um herstöð Bandaríkjahers á Miðnesheiði verður sífellt fjarlægari. United States Naval Air Station Keflavik (NASKEF) var lokað í september 2006 vegna niðurskurðar hjá bandaríska hernum. Þar lauk stórum kafla í Íslandssögunni sem hófst þegar bandarískur her steig fyrst á land á Íslandi árið 1941 þegar hann leysti breska setuliðið af.

 

Hér… [Lesa meira]

Sænski súkkulaðidrykkurinn Pucko og Helgi Skúlason

Vídjó

Frá árinu 1954 hefur súkkulaðidrykkurinn Pucko verið gífurlega vinsæll hjá frændum okkar Svíum og er af mörgum talinn vera þeirra þjóðardrykkur. Súkkulaðimjólkina drekka þeir vanalega með pylsum og er sú blanda jafn þjóðleg hjá þeim og Bæjarins Beztu og kók hjá Íslendingum.

 

Nafnið á drykknum er fengið af orðinu pucko sem þýðir einfaldlega bjáni eða… [Lesa meira]