Berlínarbjörninn við Hellusund: 2380 kílómetrum frá Berlín

Það eru fáar styttur í Reykjavík jafn dularfullar og styttan af berlínarbirninum sem er að finna við horn Hellusunds, Laufásvegar og Þingholtsstrætis. Styttan, sem hefur verið besti vinur kvenskælinga undanfarin 16 ár eða svo, var gjöf til Reykjavíkur frá íbúum Berlínar.

 

Stytta þessi er eftir þýsku listakonuna Renée Sintenis þó líklega sé um afsteypu að ræða. Hún er úr málmblöndu en… [Lesa meira]

Menningarhátíð Harlem 1969

Sumarið 1969 hefur löngum verið kennt við sumarið sem tónlistarhátíðin Woodstock setti allt á annan endann á austurströnd Bandaríkjanna. En í lok júlí sama ár hófst Menningarhátíð Harlem, Harlem Cultural Festival, í þessu fornfræga hverfi á norðanverðri Manhattan-eyju í New York.

 

Hátíðinni, sem stóð yfir í einn mánuð, var ætlað að þjappa þeldökkum íbúum New York-borgar saman. Árið 1968 hafði blökkumannaleiðtoginn… [Lesa meira]

Ljósmyndir af andlitum nítjándu aldar: Íslendingar árið 1900

Breski ljósmyndarinn Frederick W.W. Howell er lesendum LEMÚRSINS að góðu kunnur en hann tók ómetanlegar ljósmyndir á Íslandi og í Færeyjum á síðasta áratug nítjándu aldar. Hér sjáum við myndir af íslensku fólki sem Howell tók á ferðalagi sínu um landið við aldamótin.

 

Howell teiknaði líka myndir af íslensku landslagi og birti í bókinni Icelandic Pictures Drawn With Pen And Pencil… [Lesa meira]

Gleymd andlit frá Íran á bönnuðum ljósmyndum, 1920-1950

Þegar klerkastjórnin tók við völdum í Íran árið 1979 voru allar ljósmyndir af konum með hárið óhulið bannaðar. Í kjölfarið voru fjölmörg ljósmyndastúdíó brennd til grunna fyrir að hafa áður fyrr leyft sér slíkt guðlast — önnur lokuðu dyrum sínum hljóðlega og filmusöfnin, ómetanlegur fjársjóður um sögu landsins, voru skilin eftir að rotna yfirgefin í geymslum og háaloftum.

 

Í tíu ár… [Lesa meira]

Viðtöl fyrir aftöku: Rætt við dauðadæmda morðingja í kínverskum spjallþætti

Vídjó

Á hverju laugardagskvöldi á árunum 2006-2012 horfðu milljónir Kínverja á sjónvarpsþáttinn Viðtöl fyrir aftöku. Í þessum ótrúlega spjallþætti ræddi fréttakonan Ding Yu við dauðadæmda morðingja. Hugsunin var að morðingjarnir fengju þar tækifæri til að útskýra voðaverk sín og til að flytja síðustu skilaboðin til umheimsins. Stundum fóru viðtölin fram rétt fyrir aftökur og í… [Lesa meira]

Nýjum vegi fagnað, 1898

Íbúar í Eksingedalen í Noregi fagna nýjum vegi í Flatekval árið 1898. Mynd: Fylkesarkivet i Sogn og… [Lesa meira]