Ljósmyndir sýna Hitler æfa sig fyrir ræðuhöld

Heinrich Hoffmann var ljósmyndari sem starfaði í hirð Hitlers á dögum þriðja ríkisins. Hann gekk snemma til liðs við nasistaflokkinn og var valinn sem opinber ljósmyndari Hitlers. Þeir urðu góðir félagar og nánir samstarfsmenn. Hoffmann sat á þingi fyrir nasistaflokkinn frá 1933.

 

Hann kynnti Hitler fyrir Evu Braun, sem varð eiginkona hans á síðustu dögum síðari heimsstyrjaldarinnar, rétt áður en hjónin… [Lesa meira]

Hvíta húsið var knúið sólarorku í tíð Jimmy Carter

Jarðhnetubóndinn Jimmy Carter var líklega einn óvinsælasti forseti Bandaríkjanna frá upphafi þegar hann yfirgaf Hvíta húsið árið 1981. Í seinni tíð hefur forsetatíð hans þó verið endurmetin honum í hag, enda er arfleifð hans sem forseta merkileg fyrir margra hluta sakir.

 

Carter var til dæmis mikill frumkvöðull í umhverfismálum. Hann virtist hafa áttað sig á dvínandi orkulindum jarðarinnar, þegar árið 1977.… [Lesa meira]

Í bljúgri bæn: Megas, sálmurinn og morðballaðan

Í þessu frábæra myndskeiði frá 1984, sem Viðar Víkingsson hlóð á YouTube, syngur Megas sálminn Í bljúgri bæn og þökk til þín sem séra Pétur Þórarinsson samdi. Lagið er bandarískt þjóðlag, Banks of the Ohio, svokölluð morðballaða.

Fjölmargir tónlistarmenn hafa flutt morðballöðuna, þar á meðal Johnny Cash, Joan Baez og Olivia Newton John. Hún fjallar um mann að nafni Willie… [Lesa meira]

Ítalía árið 1923: Lík hermanns úr fyrri heimsstyrjöld í fjallshlíð

Ljósmynd tekin árið 1923 í hlíðum Marmolada-fjalls á Ítalíu. Fjallgöngumenn finna lík af hermanni í fyrri… [Lesa meira]

Borg í andarslitrum: Magnaðar ljósmyndir sýna vonleysið í Detroit

Lemúrinn hefur áður fjallað um hnignun Detroit-borgar. Í Detroit á sér stað einstök þróun á vesturhveli jarðar þar sem við getum fylgst með iðnvæddri kapítalískri borg liðast hægt en örugglega í sundur eftir mikla útþenslu á sínum tíma. Fólkinu fækkar hratt en innviðir borgarinnar standa eftir, yfirgefnir og grotnandi.

 

Á dögunum barst Lemúrnum ábending frá lesanda um síðuna Detroit Urbex sem… [Lesa meira]

Bertrand Russell neitaði að rökræða við enska fasistann Sir Oswald Mosley

Lemúrinn hefur áður fjallað um enska heimspekinginn og rökfræðinginn Bertrand Russell (1872-1970) og hefur meðal annars greint frá reykingum hans, trúleysi og hlutverki hans í Bollywood-kvikmyndinni Aman. Russell var vinstrisinnaður, og virkur í alþjóðlegu baráttunni gegn kjarnorkuvopnavæðingu Kalda stríðsins.

 

Oswald Mosley ásamt Benito Mussolini, fasistaleiðtoga Ítalíu.… [Lesa meira]