Ekki næg bílastæði í gjaldþrota bílaborginni Detroit

Árið 1926 var glæsileg bygging tekin í notkun í Detroit-borg sem nefnist Michigan-byggingin. Að utan lætur húsið ekki mikið yfir sér. Hefðbundinn steinsteypukassi í hefðbundinni stórborg. En saga byggingarinnar er dæmigerð fyrir Detroit-borg, sem nú er gjaldþrota.

 

Að innan var litlu til sparað, þá sérstaklega í anddyrinu, en húsið var byggt í nýendurreisnarstíl.

 

Byggingin telur 13 hæðir og framan af var… [Lesa meira]

Af ævintýrum Münchhausen baróns og hvernig þau urðu að áróðurstæki nasista

Ævintýri Münchhausen baróns eru líklegast einar frægustu grobbsögur allra tíma. Þær eru eignaðar Karli Friðriki Híerónýmusi (1720-1797) fríherra frá Münchhausen (fríherra er annað orð yfir barón) sem ungur að árum gekk í rússneska herinn og barðist við Tyrki í tveimur herleiðöngrum.

 

Síðar gerðist hann virðulegur kaupsýslumaður sem hafði gaman að segja ýkjusögur af sjálfum sér í matarboðum. Hæfileiki hans til að segja sögur… [Lesa meira]

Bakarí, hárgreiðslustofur, frystihús og sauðfé: Ljósmyndir af Reykjavík um 1930

Börn framan við hús Ó. Johnson og Kaaber í Hafnarstræti, 17. júní 1928. Hér sjáum við svipmyndir af hversdagslífinu í Reykjavík um 1930. Til dæmis bakarí, hárgreiðslustofur, frystihús og sauðfé.

 

Ljósmyndarinn Magnús Ólafsson (1862-1937) er góðkunningi á síðum Lemúrsins. Það er ekki síst vegna magnaðra mynda sem hann tók af Reykjavík á fyrstu áratugum tuttugustu aldarinnar en þær eru varðveittar… [Lesa meira]

Eyja hinna syndandi svína

Íbúar smáeyjunnar Big Major Cay á Bahamaeyjum lifa frjálsu og áhyggjulausu lífi – liggja mestanpart dagsins á ströndinni, sleikja sólina og baða sig í kristalstærum sjónum. Eyjarskeggjarnir eru þó ekki menn heldur alisvín, sem lagt hafa eyjuna undir sig.

 

Enginn veit hvaðan svínin koma eða af hverju þau eru niðurkomin á þessari eyju. Mennskir íbúar nálægra eyja hafa lagt það í vana… [Lesa meira]

Pennavinur blakkmetal-morðingja á Íslandi: „Hann skipar mér að gera Ísland heiðið á ný“

Lemúrinn rifjaði upp söguna af Varg Vikernes í norsku blakkmetalsveitinni Mayhem. En hann myrti Øystein Aarseth, félaga sinn úr hljómsveitinni í ágúst 1993. Stakk hann 23 sinnum. Nú hefur bassa­leik­ar­inn, „Grishnackh greifi“, öðru nafni Varg Vikernes, kom­ist aftur í fréttir en hann hefur verið hand­tek­inn í Frakklandi grun­aður um að skipu­leggja hryðjuverk. Árið 1994 birtist í Pressunni umfjöllun Dr. Gunna… [Lesa meira]

Morð og metall í Noregi: Þegar bassaleikarinn myrti gítarleikarann

Þann 10. ágúst árið 1993 var Norðmaðurinn Øystein Aarseth stunginn 23 sinnum — tvisvar í höfuðið, fimm sinnum í hálsinn og sextán sinnum í bakið — fyrir utan íbúð sína í Osló. Øystein, 25 ára gamall, var betur þekktur undir nafninu „Euronymous“ og var gítarleikari í Mayhem, einni fremstu blakkmetal-hljómsveit Noregs.

 

Og morðinginn var bassaleikarinn, „Grishnackh greifi“, öðru nafni Varg Vikernes,… [Lesa meira]