Heimsflug Douglas 1924 á Íslandi

Heimsflug Douglas var verkefni Douglas-flugvélaverksmiðjunnar og Bandaríkjahers. Reynt var á langdrægni flugvéla og þeim flogið í kringum hnöttinn. Ísland var heimsótt í þessu skyni í ágúst 1924. San Diego Air & Space Museum geymir ljósmyndir frá þessari svaðilför bandarískra flugmanna og hér sjáum við myndir frá Íslandi. Fyrir ofan tekur Hornafjörður á móti gestunum og fyrir neðan sést U.S.S… [Lesa meira]

„Má ég kyssa þig, félagi Stalín?“

Vídjó

Úr Padeniye Berlina (Falli Berlínar), sovéskri áróðursmynd frá árunum eftir síðari heimsstyrjöldina. Lýðurinn þakkar Stalín fyrir afrek í styrjöldinni og biður um að fá að kyssa hann. (Klippan birtist í heimildarmyndarþáttaröð BBC og PBS People’s… [Lesa meira]

Kastró ásamt smávöxnum aðdáendum

Kúbverski byltingarleiðtoginn Fídel Kastró sést hér ásamt hópi af börnum í Kastró-gervi. Myndin var tekin í New York þann 24. apríl 1959. Sonur Kastrós gekk þá í barnaskóla í Queens og ungmennin eru vinir hans úr… [Lesa meira]

Minnispunktar SS-manns á Íslandi: Þrælslund, lágkúra og aðalsbornir Íslendingar vonbrigði

Dr. Werner Gerlach var þýskur læknir og meðlimur í nasistaflokknum sem gegndi embætti aðalræðismanns Þýskalands á Íslandi á árum Þriðja ríkisins. Nasistafáninn blakti við hún við Túngötu 18 í Reykjavík. Þegar breskur her gekk á land á Íslandi 10. maí 1940 var eitt hans fyrsta verk að handsama þýska aðalræðismanninn. Gerlach hafði reynt að brenna pappíra og skjöl í baðkari… [Lesa meira]

Áróðursmálaráðuneytið: Bretar öruggir undir augum eftirlitsríkisins

Lemúrinn hélt að klaufaleg áróðurstækni fjórða og fimmta áratugsins væri löngu búin að deyja drottni sínum, en svo virðist ekki vera.

 

Áróðursplakat þetta birtist víðsvegar í strætóskýlum Lundúna árið 2002, skömmu eftir innleiðingu eftirlitsmyndavéla í almenningssamgöngukerfi borgarinnar. Ótrúlegt en satt þá var plakatið hvorki ádeila né grín. Það var birt í fúlustu alvöru á vegum embættis borgarstjóra Lundúna, sem þá var… [Lesa meira]

Pólitískur Paul var bannaður á BBC eftir blóðuga sunnudaginn

Það hefur frekar verið viðloðandi arfleifð ofbeldisfulla friðarsinnans Johns Lennons að vera talinn pólitískur. Hann var jú undir eftirliti hjá bandarísku leyniþjónustunni CIA eins og frægt er orðið. Hann barðist og söng fyrir friði, fyrir réttindum verkamannastéttarinnar, fyrir kvenréttindum og hverju sem honum datt í hug. Gamli ólátabelgurinn John.

 

Paul McCartney virtist í öllu falli mun prúðari og stilltari, var lítið… [Lesa meira]