Lemúrinn á Rás 1: Hlustið á fyrsta þáttinn sem fjallar um lemúra, sauðnaut og aðrar furðuskepnur

Árið 1929 voru framandi dýr sýnd á Austurvelli. Þetta voru sjö sauðnautakálfar sem íslenskir veiðimenn höfðu fangað á Norðaustur-Grænlandi. Kálfarnir áttu ekki eftir að eiga hamingjusama ævi á Íslandi. Lemúrinn, nýr útvarpsþáttur á Rás eitt, segir þá miklu sorgarsögu sem íslensk sauðnautasaga er.

 

Hlustið hér á þáttinn.

Lemúrinn er í umsjá Helga Hrafns Guðmundssonar og Veru Illugadóttur, ritstjóra Lemúrsins.is. Í… [Lesa meira]

1. þáttur: Sauðnaut, lemúrar og furðuverur Borgesar

Fyrsti þáttur Lemúrsins var fluttur á Rás 1 fyrsta október. Árið 1929 voru framandi dýr sýnd á Austurvelli. Þetta voru sjö sauðnautakálfar sem íslenskir veiðimenn höfðu fangað á Norðaustur-Grænlandi. Kálfarnir áttu ekki eftir að eiga hamingjusama ævi á Íslandi. Lemúrinn segir þá miklu sorgarsögu sem íslensk sauðnautasaga er.

 

Hlustið hér á þáttinn (mp3-​​​​skrá hjá hlaðvarpi RÚV).

 

Lemúrinn er á hlaðvarpinu.

 

Umsjónarmenn eru Helgi… [Lesa meira]

Heimildarmynd: Á ferðalagi í Pyongyang, höfuðborg Norður-Kóreu

Vídjó

Hér sláumst við í för með Elise Potaka hjá áströlsku sjónvarpsstöðinni SBS til Norður-Kóreu. Rætt er við ýmsa norðurkóreska borgara og við Ray Ferguson, hjá samtökunum Australia-North Korea Friendship… [Lesa meira]

Áróðursmálaráðuneytið: Alaska er dauðagildra fyrir japönsku rottuna

Aleuteyjar

Aleuteyjar

Áróðursplakat þetta er úr seinni heimsstyrjöld og var gert á vegum bandaríska sjóhersins á árunum 1942-1943. Þar sést japani í líki rottu freistast í músagildru í Alaska.

 

Ekki allir vita að átök Bandaríkjanna og Japans í Kyrrahafi… [Lesa meira]

Hvað heitir bróðir Ripps, Rapps og Rupps?

Systursynir Andrésar andar, þríburarnir Ripp, Rapp og Rupp, eru komnir á áttræðisaldur, en þeir birtust almenningi fyrst í myndasögu í dagblaði í október 1937.

 

Á ensku heita þríburarnir Huey, Dewey og Louie. Huey er nefndur eftir bandaríska stjórnmálamanninum Huey Long, sem var gífurlega vinsæll ríkisstjóri og öldungadeildarþingmaður Louisiana-fylkis frá 1928 til 1935 þegar hann var myrtur.

 

Dewey heitir eftir George Dewey, sem… [Lesa meira]

Franskur hermaður ávarpar sveitastúlku

Autochrome litaljósmynd þessi er frá árum fyrri heimsstyrjaldar, sennilega í kringum 1917. Á henni sést franskur hermaður ávarpa fölleita sveitastúlku. Ljósmyndarinn er… [Lesa meira]