Berit Wallenberg (1902–1995) var sænskur fornleifa– og listfræðingur. Hún átti farsælan fræðaferil en er einnig minnst fyrir ljósmyndir sem tók hún á ferðalögum sínum í Svíþjóð og erlendis.
Hún hóf að taka myndir á unglingsárunum og notaði myndavélina alla ævi sem vinnutæki við rannsóknir sínar á listmunum, arkitektúr og fornminjum.
Þessar myndir þykja nú hafa mikið varðveislugildi og eru geymdar hjá Þjóðminjaverði Svía (Riksantikvarieämbetet).
Berit Wallenberg ferðaðist sumarið 1930, 28 ára gömul, til Íslands og fylgdist með þjóðhátíðinni sem haldin var á Þingvöllum til að minnast þess að 1000 ár væru liðin frá stofnun Alþingis. Berit tók myndir þar, í Reykjavík og í Vestmannaeyjum.
Hún var náskyld Raoul Wallenberg, sænska stjórnarerindrekanum er bjargaði lífi tugþúsunda ungverskra gyðinga í síðari heimsstyrjöldinni en lést svo með afar dularfullum hætti í haldi Sovétmanna eftir stríðslok.
Myndir frá Reykjavík:
Myndir frá Alþingishátíðinni á Þingvöllum:
Umdeilt atriði var á dagskrá Alþingishátíðarinnar. Hestaat fór fram í fyrsta sinn um aldir. Lesið meira um málið hér.
Lemúrinn hefur áður birt merkilegar myndir frá Alþingishátíðinni. Sjáið hér ljósmyndir Valgerðar Tryggvadóttur frá þessum merkilegu hátíðarhöldum, en hún var aðeins 14 ára þegar hún festi þau á filmu.
Hann hét Oddur Sigurgeirsson, maðurinn sem klæddi sig í víkingafötin, og var kallaður Oddur sterki. Hann var þjóðsagnakennd persóna, kynlegur kvistur, í Reykjavík á millistríðsárunum. Lesið um hann hér.
Loks fór Berit til Vestmannaeyja, í að því er virðist blíðskaparveðri 2. júlí þetta ár, 1930: