Fyrri heimsstyrjöldin 1914-1918 kostaði níu milljónir manna lífið. Stríðið þurrkaði út heila kynslóð af ungum mönnum og var á þeim tíma mannskæðasta styrjöld sögunnar. Harðast var barist á vesturvígstöðvunum, þar sem risastórir herir Frakka, Breta, Þjóðverja og að lokum Bandaríkjamanna tókust á innan um stórskotahríð, sinnepsgas og vélbyssuhreiður.
Lemúrinn hefur áður birt litljósmyndir frá vesturvígstöðvunum eftir franska ljósmyndarann Jules Gervais-Courtellemont. Ljósmyndir hans eru margar hverjar glæsilegar og ómetanlegar sögulegar heimildir. Þær voru hins vegar teknar í áróðursskyni og sýna ekki hina dauðu, þar sem franska ríkið reyndi eftir bestu getu að halda hörmungum stríðsins og gríðarlegu mannfalli huldu almenningi. Ráðamenn töldu að vitneskja um hrottalegan raunveruleika skotgrafahernaðar gæti dregið úr baráttumóði landsmanna.
Nú birtum við hér á Svarta blogginu nokkrar ljósmyndir af hinum ótalmörgu dauðu. Myndirnar eru alls ekki fyrir viðkvæma, þar sem þær sýna tætta og limlesta skrokka, stafla af líkum og skotgrafir fylltar dauðum ungmennum.
Heimild: World War 2 Zone