Lemúrinn fjallar um gríska heimspekinginn Þeófrastos og manngerðir hans, skrítnar uppfinningar leikskáldsisn Jóhanns Sigurjónssonar og bófaharmonikkutónlist frá… [Lesa meira]
Þáttur Lemúrsins á Rás 1 fær fimm stjörnur
Lemúrinn er á Rás 1 alla þriðjudaga klukkan 16:05. Hlustið á okkur! Hér er fimm stjörnu dómur sem birtist í DV. „Í þættinum sameinast tvennt af því allra besta í íslensku menningarlífi, Lemúrinn, annars vegar, og Rás 1, hins vegar.“
Hér er síða Lemúrsins á vefsíðu RÚV.
Víetnamski munkurinn sem brann í mótmælaskyni
Þann 11. júní 1963 settist 66 ára gamli búddamunkurinn Thich Quang Duc á veginn fyrir utan kambódíska sendiráðið í Saigon, þáverandi höfuðborg Víetnam. Hann mælti:
Áður en ég loka augunum og færist í átt til Búdda bið ég virðingarfyllst Ngo Dinh Diem forseta um að sýna þjóðinni samúð og innleiða trúarlegt jafnrétti til þess að tryggja ævarandi styrk heimalandsins.… [Lesa meira]
Ungur Andy Warhol gerði stórkostlega matreiðslubók árið 1959
Um vorið 1959 hafði Andrew Warhol búið í New York í áratug. Hann var tiltölulega óþekktur sem myndlistarmaður og vann fyrir sér við að myndskreyta barnabækur fyrir bókaútgefandann Doubleday (já, hinn sama og Elaine Benes vann fyrir).
Warhol hélt þó stöku myndlistasýningar og oftar en ekki á sínum uppáhalds „veitingastað“ – ísbúðinni Serendipity. Á einni slíkri sýningu kynntist hann innanhússhönnuðinum og… [Lesa meira]
Morðóða norska ekkjan Belle Gunness myrti tugi manna og hvarf svo
Sumar sögur þykja með svo miklum ólíkindum að þær hafa fengið goðsagnakenndan blæ. Sagan af Belle Gunness er ein þeirra.
Norska sveitastúlkan Brynhild Paulsdatter Størset (f. 1859) unni lífinu í sveitinni í Selbu-héraði, nærri Þrándheimi, þangað til dag nokkurn árið 1877.
Þennan örlagaríka dag ákvað Brynhild, þá 18 ára og ófrísk af sínu fyrsta barni, að fara á dansleik. Má gera sér í… [Lesa meira]
Óhugnanleg ljósmynd frá 1937: Litlir sovéskir draugar með gasgrímur
Þessi óhugnanlega ljósmynd var tekin árið 1937 af rússneska ljósmyndaranum Viktori Búlla og ber nafnið „Brautryðjendur í varnaræfingum í Leníngrad“. Myndin er í áróðursanda en virðist þó ekki vera þvinguð fram – í henni er sérstakt andrúmsloft, sorglegt og draumkennt, óþægilegt og hrollvekjandi.
Ljósmyndinni var þó ekki ætlað að vera nein hryllingsmynd né óður til sakleysis og stríðshörmunga.
Hún átti að sýna… [Lesa meira]