Eru tímaferðalög möguleg? Lemúrinn kafar í ýmsar sögur sem fjalla um tímaflakk. Rætt er um það þegar argentínski rithöfundurinn Borges hitti sjálfan sig. Og um smásögu eftir bandarískan rithöfund um amerískan dáta á Íslandi sem ferðast aftur til… [Lesa meira]
Lenín teflir
„Skák og mát!“ Vladimir Lenín, verðandi leiðtogi Sovétríkjanna, teflir við Alexander Bogdanoff heima hjá rithöfundinum Maxím Gorkí.
Í Moskvu, apríl… [Lesa meira]
Forsætisráðherra í hlutverki seiðandi tálkvendis
Flestir kannast við hljómsveit Barða Jóhannssonar, Bang Gang. Færri vita hins vegar að Bang Gang var upphaflega tveggja manna verkefni skólafélaga úr Menntaskólanum í Reykjavík. Annar þeirra var vitaskuld Barði en hinn var Henrik Björnsson, sem átti síðar eftir að gera garðinn frægan með hinni ofursvölu hljómsveit Singapore Sling.
Fyrsta smáskífa hljómsveitarinnar, „Listen Baby“, er í talsvert öðrum stíl en síðari… [Lesa meira]
Heimspekingurinn sem var stoppaður upp
Breski heimspekingurinn Jeremy Bentham lést í hárri elli árið 1832. En þegar Bentham var um tvítugt hafði hann þegar ákveðið að láta varðveita lík sitt um aldur og ævi eftir dauðann. Hann er enn geymdur í skáp í háskólanum University College í London. Þar situr hann á uppáhaldsstól sínum. Hann situr kjurr. Horfir út í tómið. Á stórhátíðisstundum er hann… [Lesa meira]
Norsk lík rotna ekki nógu hratt og liggja eins og álegg í plasti
Norðmenn glíma við sérstakan vanda. Gríðarlega mörg norsk lík af föllnum frændum okkar rotna ekki. Á sínum tíma þótti fínt að vefja hinum dauðu í plastpoka og það hefur þessi áhrif. Fyrrum kirkjugarðsstarfsmaður hefur fundið lausnina.
„Ég óttast ekki dauðann. Ég hafði verið dauður í milljarða ára áður en ég fæddist og hafði ekki minnsta ónæði af því.“
Þetta hafði bandaríski rithöfundurinn… [Lesa meira]
„Þær koma“: Þegar geimverur lentu (næstum því) á Snæfellsjökli árið 1993
Árið 1993 var spáð að geimverur myndu í fyrsta sinn í veraldarsögunni birtast mönnum opinberlega. Þetta átti að gerast við Snæfellsjökul á litla Íslandi 5. nóvember 1993 klukkan 21:07.
Í lok ágúst það ár var haldin ráðstefna um geimverur og fljúgandi furðuhluti í Háskólabíói. Fullt var út úr dyrum á ráðstefnunni sem tengdist að einhverju leyti sýningum á kvikmyndinni Fire in… [Lesa meira]