19. þáttur: Íslendingur í vísindaskáldsögu Keplers og eftirminnilegar geimkvikmyndir

Lemúrinn ferðast út í geim. Hann gluggar í eina fyrstu vísindaskáldsögu bókmenntasögunnar eftir stjarnfræðinginn Jóhannes Kepler, um ungan Íslending sem fræðist um lífið á tunglinu, og fjallar um nokkrar eftirminnilegar… [Lesa meira]

„Hver er Barði?“: Dramatísk heimildarmynd um líf og störf Barða Jóhannssonar

Vídjó

Ragnar Bragason gerði heimildarmynd um tónlistarmanninn Barða Jóhannsson í Bang Gang sem frumsýnd var árið 2004. Á vef Kvikmyndamiðstöðvar Íslands segir um þessa mynd: „Hópur kvikmyndagerðarmanna fylgir Barða eftir við upptökur á nýrri plötu. Barði gefur af sér þá mynd að hann sé heilsufrík með áhuga á andlegum málefnum og íþróttum en kvikmyndagerðarmennina grunar… [Lesa meira]

„Við viljum bjór“

„Við viljum bjór.“ Bandaríkjamenn mótmæla áfengisbanninu þar í landi, einhvern tímann á árunum 1920-1930.

 

Sala áfengis var bönnuð vestanhafs árið 1920 með átjándu við­bót­inni við stjórn­ar­skrá Bandaríkjanna. Þessi til­raun til þess að bæta sið­gæði Bandaríkjamanna var gríðarlega óvinsæl hjá mörgum og gat af sér stóran svartan markað í höndum skipulagðra glæpagengja. Ákvæðið var að lokum afnumið 1933 eftir árang­urs­lausa þrettán ára bar­áttu… [Lesa meira]

„Jón minn!“: Jónas Hallgrímsson biður Jón Sigurðsson um lán

Jónas Hallgrímsson var, eins og flestir vita, skáld og náttúrufræðingur sem starfaði í Kaupmannahöfn. Hann átti ekki sérstaklega hamingjuríka ævi og dó langt fyrir aldur fram árið 1845 vegna blóðeitrunar, sem stafaði af fótbroti sem hann hlaut við að detta niður stiga. Jónas var tæplega 38 ára.

 

Listaskáldið góða, eins og hann er gjarnan kallaður, stríddi löngum við peningavandræði og þurfti… [Lesa meira]

Höfuðleðrið flegið af honum þrettán ára

Árið 1864 var þrettán ára gamli munaðarleysinginn Robert McGee að ferðast vestur til Santa Fe í Bandaríkjunum ásamt stórum hópi landnema. Svo fór að vopnuðu fylgdarmennirnir drógust aftur úr vagnalestinni. Í vesturhluta Kansas réðust Sioux-indjánar á varnarlausu ferðalangana, sem voru snarlega yfirbugaðir og drepnir á staðnum — að McGee og einum öðrum dreng undanskildum.

Indjánar þessir voru undir forystu höfðingjans Litlu skjaldböku. Höfðinginn… [Lesa meira]

Magnaðar ljósmyndir Svía frá Íslandi árið 1930

Berit Wallenberg (1902–1995) var sænskur forn­leifa– og list­fræð­ingur. Hún átti far­sælan fræða­feril en er einnig minnst fyrir ljós­myndir sem tók hún á ferða­lögum sínum í Svíþjóð og erlendis.

 

Hún hóf að taka myndir á unglings­ár­unum og not­aði mynda­vél­ina alla ævi sem vinnu­tæki við rann­sóknir sínar á list­munum, arki­tektúr og fornminjum.

Berit á ferða­lagi í Þýskalandi</a>… <a class=[Lesa meira]