Häxan: Sænsk horror-heimildarmynd frá 1922

Häxan er sænsk-dönsk „heimildarmynd“ frá 1922.  Danski leikstjórinn Benjamin Christensen gerði hana á þögla tímanum en myndin er öðrum þræði rannsókn hans á Mallus Maleficarum, þýskri galdraofsóknabók frá 15. öld.

 

Skoðað er hvernig geðsjúkdómar og aðrir kvillar stuðluðu að hinum hörmulegu galdraofsóknum í Evrópu á öldum áður þegar saklaust fólk var miskunnarlaust brennt á báli fyrir meinta galdra. Hér er… [Lesa meira]

Karlmenn neyddir til að hlusta: Kvennastríðið í Nígeríu 1929

Hvað eiga konur að gera þegar karlar sýna þeim óvirðingu? Svar Igbokvenna er einfalt: Þær setjast á þá.

 

Skáldsagan Things Fall Apart (1958) eftir nígeríska rithöfundinn Chinua Achebe segir frá Okonkwo, ungum manni af Igbo þjóðflokknum, um það leyti er Nígería varð að breskri nýlendu.

 

Okonkwo heldur fast í hefðir forfeðra sinna og færir umtalsverðar fórnir til þess að viðhalda þeim. Honum tekst aftur á móti ekki… [Lesa meira]

Toblerone: svissneska súkkulaðið með björn í merki sínu

Svissneska súkkulaðið Toblerone á sér fjölmarga aðdáendur á Íslandi og víðar. Það voru þeir Theodor Tobler og Emil Baumann sem fullkomnuðu uppskriftina að þessu gómsæta hunangs-núggat-möndlu-súkkulaði árið 1908.

 

Toblerone hefur frá upphafi haft sína sérstöku lögun, hver moli – eftir að hann hefur verið brotinn frá bræðrum sínum – á helst að líkjast Matterhorn-fjallinu (ít. Monte Cervino), í vesturhluta Alpafjalla á… [Lesa meira]

21. þáttur: Furðulegir líffæraflutningar og Hundshjarta Búlgakovs

Lemúrinn fjallar um furðulegar tilraunir úr sögu læknisfræðinnar og frumstæðar tegundir líffæraflutninga. Á fyrri hluta tuttugustu aldar reyndu rússneskir vísindamenn að græða höfuð á hunda og ýmislegt fleira. Rithöfundurinn Mikhaíl Búlgakov notaði slík dæmi í verkum… [Lesa meira]

Fyrsta ljósmynd sögunnar af mannveru

Maður sem stóð í nokkrar mínútur á sama stað á götu í París árið 1838 var fyrsti maðurinn sem fangaður var á ljósmynd í sögunni. Enginn veit hver hann var.

 

Louis Daguerre tók myndina, en hann var einn af þeim sem fundu upp ljósmyndatæknina. Myndin sem hér sést er frá árinu 1838. Hún sýnir götuna Boulevard du Temple í París. Til… [Lesa meira]

Máttur nornarinnar: Merkileg heimildarmynd frá 1971

Litlar sem engar upplýsingar eru til á netinu um þessa áhugaverðu bresku heimildarmynd um nornir frá 1971. The Power of the Witch var aðeins sýnd einu sinni í bresku sjónvarpi og hefur síðan fallið í gleymskunnar dá, samkvæmt YouTube-notandanum Tsaitsitarot. Horfið á hana hér. Via Dangerous Minds.

 

Vídjó[Lesa meira]