Chewbacca birtir frábærar ljósmyndir sem teknar voru baktjaldamegin í Star Wars

Leikarinn Peter Mayhew lék hinn loðna vák Chewbacca í gömlu Stjörnustríðsmyndunum. Hann hefur verið duglegur að birta skemmtilegar myndir á Twitter sem teknar voru baksviðs við gerð myndanna. Ljósmyndirnar sýna ýmsar óvæntar hliðar. Við sjáum hvernig gamalkunnar senur voru kvikmyndaðar og hvernig stemningin var á… [Lesa meira]

Geimverur éta einræðisherra: The State of the Art eftir Iain M. Banks

Það að ímynda sér hvernig samfélag og siðir okkar mannanna litu út frá sjónarhóli geimvera, t.d. marsbúa, er algeng þankatilraun. Við tökum ýmsu sem gefnum hlut þó það gæti virst utanaðkomandi vitsmunaverum stórfurðulegt. Vísindaskáldsagnahöfundar hafa gert sér mat úr þess konar þankatilraunum og skrifað sögur þar sem lesandinn skoðar samfélag jarðarinnar frá öðrum sjónarhóli. Glöggt er gests augað.

 

Þekktust er kannski… [Lesa meira]

Ljósmyndirnar hennar: Brot úr lífi Fridu Kahlo

Mexíkóska listakonan Frida Kahlo átti litríka ævi. Hún málaði ódauðleg listaverk, átti í stormasömu hjónabandi með Diego Rivera, þekktasta málara landsins, en lenti líka í skelfilegum veikindum og áföllum.

 

MOLAA, Museum of Latin American Art í Kaliforníu er nú með til sýninga ýmsar ljósmyndir frá æviskeiði Fridu. Sumar eru klipptar úr fjölskyldualbúmum. Sýningin nefnist einfaldlega Myndirnar hennar en alls eru… [Lesa meira]

Hollensk kona mynduð með byssu á hverju ári í 74 ár

Hollensk kona hefur skotið á skotskífur á útimörkuðum á hverju ári frá því hún var 16 ára árið 1936. Í hvert skipti sem hún hittir í mark tekur sjálfvirk myndavél ljósmynd af henni. Því eru til myndir af konunni á öllum æviskeiðum hennar í sömu stellingum.

 

Ria van Dijk stendur grafkyrr og einbeitt. Hún tekur í gikkinn og skýtur. Hún hittir… [Lesa meira]

Söngflokkur, Írland, 1924

Írski söngflokkurinn The Humming Birds á góðri stundu árið 1924. (National Library of… [Lesa meira]

Bee Gees yrkja ódauðlegan texta um yfirvofandi dauða

Áður en Bee Gees urðu diskókóngar alheimsins fluttu bræðurnir frá eyjunni Mön yndislegar poppballöður sem nutu nokkurra vinsælda, sérstaklega á Bretlandseyjum og í Evrópu. En það var ekki fyrr en þeir sömdu texta sem minnir helst á háalvarlegan harmleik eftir bandaríska leikskáldið Tennessee Williams sem þeir komust loksins inn á topp 10 listann í Bandaríkjunum. Textinn er dimmur og dökkur… [Lesa meira]