Sígarettusjálfsali sem kveikir í rettunni, 1931

Þetta er þarfaþing: Sígarettusjálfsalinn kveikir í sígarettunni. Auðveldari gæti það ekki verið! England,… [Lesa meira]

Simone de Beauvoir skýtur úr byssu

Franski rithöfundurinn Simone de Beauvoir skýtur á skotskífu í París í júní 1929. Lífsförunauturinn, heimspekingurinn Jean-Paul Sartre, horfir nokkuð kindarlegur á… [Lesa meira]

„Mesti svindlari heims“: Var Vilhjálmur Stefánsson landkönnuður loddari?

Fyrir Íslendingum er Vilhjálmur Stefánsson hetja. En ýmsar bækur greina frá hörmulegum mistökum hans í leiðöngrum um norðurslóðir. Það var til dæmis honum að kenna að kona hafnaði alein á ískaldri eyju í Norður-Íshafi. Amundsen kallaði hann „mesta svikara heims“.

 

Vestur-Íslendingurinn heimsfrægi, Vilhjálmur Stefánsson frá Gimli í Manitoba í Kanada, var einn áhrifamesti landkönnuður heims í kortlagningu landsvæða við norðurheimsskaut jarðar… [Lesa meira]

26. þáttur: Fólk sem heldur að það sé dáið og hlæjandi mannætur

Lemúrinn fjallar um lækna og ýmsa stórfurðulega sjúkdóma fyrr og… [Lesa meira]

„Táragassprengjum kastað í allar áttir“: Lýsingar frá NATO-mótmælunum 1949

Varst þú á Austurvelli 30. mars 1949? Segðu okkur hvernig var.

 

Árið 1949 sam­þykkti rík­is­stjórn Stefáns Jóhanns Stefánssonar aðild Íslands að Norður-​​​​Atlantshafsbandalaginu. Ákvörð­unin var mjög umdeild á sínum tíma, og fjöldi manns safn­að­ist saman við Austurvöll þann 30. mars í mót­mæla­skyni. Eins og frægt er, kom til harð­vítugra átaka milli and­stæð­inga samn­ings­ins, lög­reglu og stuðn­ings­manna aðildar.

 

Lemúrinn hefur birt margar ljósmyndir frá þessum degi. Magnaðar myndir… [Lesa meira]

Litlu börnin syngja Ramones

Vídjó

Mörg mannsbörn hafa heyrt lög eftir bandarísku pönksveitina Ramones en þessir leikskólakrakkar skemmta sér konunglega þegar lagið Judy is a Punk er spilað. Þau þekkja slagarann upp á hár.

 

Jackie is a punk

Judy is a runt

They both went down to Berlin, joined the Ice Capades

And oh, I don’t know why

Oh, I don’t know why

Perhaps they’ll… [Lesa meira]