Kynngimagnaðar ljósmyndir baktjaldamegin í 2001: A Space Odyssey

Hér að ofan sjáum við rithöfundinn Arthur C. Clarke og kvikmyndaleikstjórann Stanley Kubrick á meðan tökur stóðu yfir á meistaraverkinu 2001: A Space Odyssey. Og fyrir neðan eru margar fleiri frábærar ljósmyndir.

 

Fáar kvikmyndir hafa haft jafnmikil áhrif og þessi góða geimmynd frá 1968, sem Clarke og Kubrick skrifuðu saman og sá síðarnefndi leikstýrði. Segja má að hún hafi gerbreytt sögu vísindaskáldsögulegra… [Lesa meira]

Eitursvalir gítarhljómar í Amasón: Frumskógarrokktónar frá Perú

Í Perú leynast ótrúlega skemmtilegar hljómsveitir og kraftmikil tónlistarsena. Á sjöunda og áttunda áratugnum varð til mögnuð tónlist í Amasónhluta landsins: Chicha. Þetta eru nokkurs konar brimbrettatónar úr frumskóginum.

 

Rokktónlistarsprengingin á sjötta og sjöunda áratugnum hafði ekki einungis áhrif á tónlist á Vesturlöndum. Hún flæddi líka um fjarlæg lönd á borð við Indónesíu, Namibíu og Perú.

 

Lagið sem er stef útvarpsþáttar… [Lesa meira]

Kreólinn Clifton Chenier blúsar á harmónikku

Vídjó

Þegar menn hugsa um blústónlist þá er harmónikkan sennilega ekki fyrsta hljóðfærið sem kemur þeim til hugar. Það er þó meginhljóðfæri Louisiana-kreólans og zydeco-blúsarans Clifton Chenier. Hann leikur hér lagið Louisiana Blues á nikkuna og flytur með því franskan blústexta.

 

Chenier er einn þekktasti flytjandi svokallaðrar zydeco-tónlistar, en hún er sérstök samblanda þjóðtónlistar, blús, og riðma… [Lesa meira]

Litla nasista-fólkið: „Það talar þýsku. Það ber svipur.“

Rithöfundurinn John Christopher er þekktastur fyrir The Tripods (ísl. Þrífætlingarnir), röð af vísindaskáldsögum fyrir unglinga sem voru um tíma kenndar í ensku í grunnskólum á Íslandi.

 

Christopher skrifaði fleiri bækur, þar á meðal hryllingssöguna The Little People (ísl. Litla fólkið) sem kom út árið 1968. Sagan greinir frá írskum nasistadvergum sem ræna ferðalöngum. Lemúrinn er sérlega hrifinn af framhlið kápunnar, þar sem við… [Lesa meira]

Fræg andlit á ljósmyndum franska þúsundþjalasmiðsins Félix Nadar

Félix Nadar hét réttu nafni Gaspard-Félix Tournachon og fæddist árið 1820. Hann var blaðamaður, rithöfundur og áhugamaður um loftbelgi. Hann er þó frægastur fyrir að hafa verið einn af brautryðjendum ljósmyndatækninnar. Hér sjáum við magnaðar ljósmyndir sem hann tók af ýmsum frægum mönnum í Frakklandi á síðari hluta nítjándu aldar.

 

Nadar var uppátækjasamur og frumlegur í listsköpun sinni. Snúningsjálfsmyndin hans hér… [Lesa meira]

„Íslenzku blóði hefir úthelt verið“: Íslenskir hermenn í fyrri heimsstyrjöldinni

Heimsstyrjöldin fyrri hófst 28. júlí 1914 og lauk 11. nóvember 1918. Talið er að fjöldi hermanna í stríðinu hafi verið um 70 milljónir þegar allt er talið. Nánast öll voldugustu ríki heims drógust inn í hildarleikinn – sem þá var mesta styrjöld mannkynssögunnar. Um 15 milljónir manna dóu. Það var fólk frá fjölmörgum þjóðlöndum og þar á meðal Íslandi.

 

Ríflega 1200… [Lesa meira]