28. þáttur: Ófreskjur

Lemúrinn fjallar um ófreskjur og aðrar furðuskepnur – meðal annars ógurlegt leirmenni skapað með göldrum og sæskrímsli sem varð á vegi íslensks bónda árið 1854. Þá er fjallað um furðuleg skrímsli á sjónvarpsskjánum, til dæmis klósettskrímslið í… [Lesa meira]

„Norrænn þokki“: Íslenskar stúlkur sýna listir sínar, 1932

Vídjó

„Íslenskar stúlkur eru alveg jafn hjartahlýjar og glæsilegar og suðrænar meyjar, þrátt fyrir kuldalegt nafn eyjunnar þeirra,“ segir í þessari þöglu mynd frá 1932. Íslenskar stúlkur dansa og teygja sig.

 

„Jafnvægi og tími – fullkomið.“

 

Stúlkurnar virðast vera á íþróttavelli í Bretlandi. Vita lesendur meira um málið?

 

Myndskeiðið er geymt hjá breska filmusafn­inu British… [Lesa meira]

Áróðursmálaráðuneytið: Indjáninn sem tárast yfir mengun í Ameríku

Vídjó

Árið 1971 sendu bandarísku samtökin Keep America Beautiful frá sér þessa auglýsingu. Við sjáum indjána tárast yfir náttúruspjöllunum og menguninni sem fylgir lífi nútímamannsins.

 

Leikarinn Iron Eyes Cody, sem var af ítölsku bergi brotinn, fór með hlutverk indjánans. Auglýsingin var sýnd í bandarísku sjónvarpi þann 22. apríl, á hinum svokallaða Degi jarðar, og var umdeild á sínum tíma. Þá… [Lesa meira]

„Hér sitja menn úti á skyrtunni“: Frábært myndband sýnir Ísland 1938

Vídjó

Hér er myndband sem sýnir land og þjóð á klakanum 1938.

 

Breski sögumaðurinn segir áhorfendum frá ýmsum hliðum Íslands, hann talar um gróðurhús og þvottalaugar. Og hann segir frá furðulegri hefð Íslendinga, sem við höfum kannski gleymt: „Hér situr fólk úti á skyrtunni, jafnvel í köldu veðri.“ Og myndavélinni er beint að mönnum að… [Lesa meira]

Filippus prins á Íslandi sumarið 1964

Vídjó

Sumarið 1964 kom Filippus prins, hertoginn af Edinborg, og eiginmaður Elísabetar II Bretadrottningar til Íslands. Hér sjáum við skemmtilega litmynd frá heimsókninni þar sem hann sést meðal annars á svölum Alþingishússins ásamt Ásgeiri Ásgeirssyni, forseta Íslands. Prinsinn veifar til pöpulsins að breskum kóngasið.

 

Muna lesendur eftir þessari heimsókn? Leynast þeir kannski í myndskeiðinu? Segið okkur… [Lesa meira]

Forseti nýja lýðveldisins Íslands hittir Franklin D. Roosevelt

Vídjó

Lemúrinn heldur áfram að grúska í filmusafni British Pathé í leit að efni tengdu Íslandi. Hér sést stórmerkileg fréttaupptaka frá 24. ágúst 1944. Þar sjáum við Svein Björnsson, forseta hins nýstofnaða íslenska lýðveldis, ganga á fund Franklins D. Roosevelt bandaríkjaforseta. Roosevelt lést úr lömunarveiki tæpum átta mánuðum síðar.

 

Samkvæmt myndbandinu fékk Sveinn góðar móttökur í Hvíta húsinu… [Lesa meira]