Var bestur í færeysku deildinni og kyssir bikarinn í fátækrahverfi í Rio

Heims­meist­ara­keppn­in í fót­bolta í Brasilíu hefst bráðum! Lemúrinn fjallar um ýmsa atburði sem tengir knatt­spyrnu­sögur Íslands og Brasilíu saman.

 

Lemúrinn flettir í stórskemmtilegri bók. Futebol: The Brazilian Way of Life eftir breska blaðamanninn Alex Bellos. Í formála segir:

 

Fótboltinn kom til Brasilíu árið 1894. Hin „ofbeldisfulla breska íþrótt“, eins og hún var kölluð, sló óvænt í gegn. Eftir nokkra… [Lesa meira]

D-dagurinn í lit

Vídjó

 

6. júní 1944, á svokölluðum D-degi, hleyptu Bandamenn af stað einn mestu innrás mannkynssögunnar á vígi Þjóðverja á ströndum Normandí í Norður-Frakklandi. Innrásin hafði mikil áhrif á gang stríðsins. Þó Hitler hefði þegar í raun tapað stríðinu þurfti gríðarlegt átak til að velta Þjóðverjum úr sessi í Vestur-Evrópu. Hér fyrir ofan sjáum við merkileg… [Lesa meira]

Saddam Hussein og fjölskylda leikur sér með byssur

Saddam Hussein, síðar forseti og einræðisherra í Írak, leikur sér með byssu. Hann stríðir Sajida Talfah, eiginkonu sinni, sem virðist reyna að bægja skotvopninu frá þó hún brosi. Myndin er tekin í kringum 1970.

 

Og á myndbandinu hér fyrir neðan sjáum við Uday, son þeirra hjóna, í miðri veislu. Hann situr pollrólegur við veisluborð þangað til þjónn réttir honum AK 47-byssu. Sonur… [Lesa meira]

Kötlugos við sólarupprás, 1918

1918. Kötlugos við sólarupprás. „Séð yfir Rauðarárholt, sennilega frá Barónsstíg.“ Mynd eftir Magnús Ólafsson. (Ljósmyndasafn… [Lesa meira]

Baldur og Konni trylla lýðinn og rokka

Skemmtileg mynd frá Arnarhóli sýnir hina víðfrægu Baldur og Konna fyrir framan múg og margmenni árið 1953. (Þjóðminjasafn Íslands/via Dr. Gunni)

 

Baldur og Konni voru gríðarlega vinsælir frá um 1945 til 1964. Baldur Georgs Takács þýðandi, kennari, töframaður og búktalari lék með leikbrúðunni Konna með mikilli list.

 

Wikipedia: „Þeir skemmtu víða við góðar undirtektir, meðal annars í Tívolíinu í Vatnsmýrinni á árunum 1947-1960, á… [Lesa meira]

Palle Huld: Danski drengurinn sem ferðaðist umhverfis jörðina og var fyrirmyndin að Tinna

Árið 1928 fór 15 ára danskur drengur í heimsreisu á vegum dagblaðsins Politiken. Belginn Hergé notaði hann sem fyrirmynd að Tinna.

 

Þetta er eins og að sjá ljósmynd af minningu sem átti sér ekki stað. Tinni sjálfur, í fötunum sínum, þessum framandlegu klæðum frá þriðja áratugnum, hann er hér á ljósmynd. Hvað næst? Ljósmynd af jólasveinunum? Grýlu? Múmínálfunum?[Lesa meira]