Frábært myndband sýnir Pyongyang, höfuðborg Norður-Kóreu, í… [Lesa meira]
Leðurblakan, 10. þáttur: Skrímslið með 21 andlit
Leðurblakan fjallar um eitt furðulegasta sakamál í sögu Japans. Í sautján mánuði, árin 1984 og 1985, hélt dularfullur óvættur sem kallaði sig Skrímslin með 21 andlit japönsku samfélagi í heljargreipum.
Skrímslið svokallaða herjaði á japanskar sælgætisgerðir og matvælafyrirtæki, rændi forstjórum þeirra og kveikti í verksmiðjum, og laumaði sælgætismolum með blásýru í… [Lesa meira]
Leðurblakan, 9. þáttur: Morðin í Hinterkaifeck
Í byrjun þriðja áratugarins, á miklum ólgutímum í Þýskalandi, fundust lík sex manna fjölskyldu á litlum bóndabæ þeirra í Bæjaralandi. Öll höfðu þau verið myrt, og það sem vakti hvað mestan óhug var að morðinginn virtist hafa setið um fjölskylduna, legið í leyni á bænum og jafnvel dvalist þar eftir að morðin voru framin.
Umfangsmikil rannsókn lögreglu á morðunum… [Lesa meira]
Leðurblakan, 8. þáttur: Hvarf Michaels Rockefellers
Árið 1961 hvarf ungur Bandaríkjamaður sportlaust langt inni í regnskógi Nýju Gíneu, á yfirráðasvæði herskárrar frumbyggjaþjóðar sem fáir Vesturlandabúar höfðu heimsótt áður. Ungi maðurinn hét Michael Rockefeller og var sonur ríkisstjóra New York og verðandi varaforseta Bandaríkjanna, og langafabarn eins ríkasta manns sögunnar.
En þrátt fyrir gífurlegan auð Rockefeller-fjölskyldunnar bar marga vikna umfangsmikil leit engan árangur. Ekkert spurðist til Michaels Rockefeller… [Lesa meira]
Leðurblakan, 7. þáttur: Morðin við Bodom-vatn
Leðurblakan fjallar um eitt óhugnanlegasta morðmál í sögu Finnlands, sem aldrei hefur verið leyst þrátt fyrir áralanga rannsókn. Ókunnur maður réðst þá á fjóra unglinga sem sváfu í tjaldi við Bodom-vatn, friðsælt stöðuvatn í nágrenni Helsinkis, snemma á sjöunda áratuginum. Þrír unglingar voru myrtir en sá fjórði komst með naumindum lífs af.
Fjölmargir hafi í gegnum árin verið grunaðir um… [Lesa meira]
Leðurblakan, 6. þáttur: Bókaþjófurinn í Stokkhólmi
Árið 2003 óskaði sænskur fræðimaður eftir því að fá lánaða bók frá nítjándu öld um Mississippi-fljótið frá Konunglega bókasafninu í Stokkhólmi.
Fræðimaðurinn var grunlaus um að fyrirspurn hans myndi setja í gang ótrúlega atburðarás á safninu, þar sem bíræfinn bókaþjófur lék þegar lausum hala — atburðarás sem myndi enda með… [Lesa meira]