„Hvers getur ung stúlka óskað sér fremur?“: Fyrstu fegurðardrottningar Íslands

Fegurðarsamkeppnir hafa löngum verið umdeildar og margir telja þær tímaskekkju í dag. Þó verður ekki deilt um að slíkar keppnir áttu drjúgan þátt í að móta sjálfsmynd Íslendinga á seinni hluta 20. aldar. Á Íslandi bjuggu jú fegurstu konur í heimi. Þetta var „staðreynd“ sem Íslendingar, hvort sem var í gríni eða í alvöru, þreyttust ekki á að minnast á.

 

Þessi hugmynd… [Lesa meira]

Þegar Grikkland til forna rassaði yfir sig

Nýleg bylgja bandarískrar popptónlistar um rassa hefur vakið nokkra athygli og jafnvel hneykslan. Sumir segja að þetta umfjöllunarefni sé ósmekkleg nýjung, merki um dekadens vorra daga; ég vil hinsvegar flækja dálítið málin og sýna að hömlulaus rassaaðdáun er ekkert nýtt. Hana má til dæmis sjá út um allt í Grikklandi til forna.

 

Forn-gríska er, líkt og íslenska, tungumál sem… [Lesa meira]

„Ég elska þig, ég elska þig og drulluhjallinn, Dísa“: Dagur Sigurðarson flytur ljóðið „Sæla“

Vídjó

Dagur Sigurðarson ljóðskáld (1937-1994) flytur ljóðið „Sælu“, sem birtist upphaflega í safninu Níðstaung hin meiri árið 1965. Klippa úr heimildarmyndinni Dagsverk. „Þegar myndin gerist hefur Dagur engan fastan samastað. Hann vaknar á sófa heima hjá kunningja sínum og þegar náttar leitar hann aftur gistingar hjá vinum. Myndin segir frá viðburðum dagsins: heimsókn… [Lesa meira]

Sólmyrkvinn í Tinna og Námur Salómons konungs

Fjöldi manns á norðurhveli jarðar fylgdist grannt með sólmyrkvanum í gærmorgun, en svo mikill sólmyrkvi mun ekki sjást aftur á Íslandi fyrr en 12. ágúst 2026. Sólmyrkvar eru ekki bara fágætir og fagrir viðburðir. Þeir hafa einnig komið við sögu í hinum ýmsu vestrænu ævintýrabókum, þar á meðal í myndasögum Hergé um belgíska blaðamanninn… [Lesa meira]

Hlaðvarpsþættir um stórkostlega grimmd og herkænsku Mongólanna

Bandaríski útvarpsmaðurinn Dan Carlin heldur úti stórskemmtilegum hlaðvarpsþáttum á netinu sem heita Hardcore History. Þar fjallar hann í löngu en óformlegu máli um alls kyns söguleg málefni.

 

Dan Carlin

Dan Carlin

Nýlegir þættir Carlins heita Wrath of the Khans, en þeir segja frá stórkostlegri grimmd og herkænsku Mongólanna á 13.… [Lesa meira]

Eins og kastali módernísks Drakúla: Listasafn Einars Jónssonar

Hnitbjörg, Listasafn Einars Jónssonar við Skólavörðuholt, er líkast kastala módernísks Drakúla eða nýgotnesks galdrakarls, sérstaklega á þessari mynd hér fyrir ofan frá um 1925. Enda má segja að myndhöggvarinn Einar Jónsson (1874-1954) hafi verið bæði.

 

Einar í London árið 1912.

… [Lesa meira]