M. C. Escher og kúlan

Hér sjáum við mynd af myndlistarmanninum M. C. Escher að halda á kúlunni frægu sem hann notaði við gerð þekktrar sjálfsmyndar. Sjálfsmyndin sést hér að… [Lesa meira]

Jóhann Svarfdælingur hjálpar dönskum listamönnum

Vídjó

Jóhann K. Pétursson Svarfdælingur (1913-1984) sést hér hjálpa dönskum listamönnum að hengja upp málverk. Jóhann var sem kunnugt er stærsti Íslendingur sem sögur fara af, 2,34 m á hæð. Hann starfaði áratugum saman við sirkussýningar og kvikmyndaleik, fyrst í Kaupmannahöfn – þar sem hann festist á stríðsárunum – og síðar í Bandaríkjunum þar… [Lesa meira]

Ofurálfan Atlantrópa: Þegar þurrka átti upp Miðjarðarhafið

Þýskaland árið 1929. Virtur arkitekt leggur til í fúlustu alvöru að þurrka skuli Miðjarðarhafið upp til að nota botn þess sem ræktunarland. Og að gríðarstór stífla verði reist í Gíbraltarsundi og margvíslegar breytingar verði gerðar á stórum svæðum í Evrópu og Afríku. Þetta var Atlantrópuáætlunin.

 

Öld öfganna var titill bókar breska sagnfræðingsins Eric Hobsbawm um sögu heimsins á tuttugustu öld. Þetta… [Lesa meira]

Útför Winston Churchill í lit

Vídjó

Í dag fer fram útför Margaret Thatcher, sem lést áttunda apríl síðastliðinn, 87 ára að aldri. Athöfnin fer fram í Pálskirkjunni í London og munu mörg fyrirmenni mæta, þar á meðal Elísabet Bretadrottning. Er þetta aðeins í annað sinn sem hún mætir í útför bresks forsætisráðherra, en það fyrra var í janúar árið… [Lesa meira]

Frönsku stéttleysingjarnir Kagótar

Margir kannast við stéttleysingjana á Indlandi, fjölda fólks sem útskúfaður er úr samfélaginu og álitinn óhreinn. Aðkomuþjóðirnar Sígaunar og Gyðingar hafa ekki átt sjö dagana sæla í Evrópusögunni. En færri vita að fram til 20. aldarinnar bjó í Frakklandi hópur útskúfaðra stéttleysingja af dularfullum uppruna.

 

Kagótar (Cagots) nefndust þessir stéttleysingjar og bjuggu í Píreneafjöllunum á landamærum Frakklands og Spánar og… [Lesa meira]

Guðbrandur Hlíðar: Saga Íslendings sem var dæmdur fyrir landráð og njósnir fyrir nasista

Vídjó

Árið 1947 voru níu Íslendingar dæmdir fyrir landráð vegna njósna fyrir Þjóðverja í síðari heimsstyrjöldinni. Einn þessara manna var Guðbrandur Hlíðar dýralæknir. En Guðbrandur lýsti síðar yfir sakleysi og segir hér sögu sína í áhrifamiklu viðtali árið 1990. 

 

Guðbrandur Hlíðar (1915-2001) var námsmaður í Danmörku þegar síðari heimsstyrjöldin braust út. Einn góðan veðurdag birtist… [Lesa meira]