Teikningar frá 16. öld sýna ógurlega grimmd Spánverja í Nýja heiminum

Grimmdarverk og þjóðarmorð Evrópumanna í Nýja heiminum eru mörgum kunnug. Spánverjar voru fyrstir til þess að koma upp nýlendum vestanhafs, á eyjunni Hispanjólu í Karíbahafi (í dag Haítí og Dóminíska lýðveldið). Þar níddust þeir miskunnarlaust á Arawak frumbyggjunum, gerðu þeim skylt að þræla í gullnámum, pyntuðu þá og nauðguðu, brenndu þá lifandi, sveltu þá, aflimuðu og myrtu í stórum stíl.

 

Frumbyggjakonur kæfðu… [Lesa meira]

Dwight Eisenhower fyrstur Bandaríkjaforseta til þess að heimsækja Ísland

Dwight Eisenhower var fyrstur sitjandi Bandaríkjaforseta til þess að heimsækja Ísland. Þann 16. júli árið 1955 stoppaði hann stutt í Keflavík á leið sinni til Genfar. Á móti honum tóku Ásgeir Ásgeirsson forseti, Ólafur Thors forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson dómsmálaráðherra og Eysteinn Jónsson fjármálaráðherra.  Samkvæmt Morgunblaðinu lét Eisenhower eftirfarandi orð falla:

 

Ég tel mig hafa verið mjög heppinn að för… [Lesa meira]

Samuel Beckett skutlaði risanum André í skólann þegar hann var lítill (en samt stór)

Lemúrinn sagði nýlega sögur af franska fjölbragðaglímumanninum og leikaranum André the Giant, sem þekktur er fyrir leik sinn í költmyndinni The Princess Bride frá 1987 og fyrir að hafa verið einn afkastamesti bjórdrykkjumaður sögunnar. En André þessi Rousimoff tengist afmælisbarni dagsins, írska nóbelsverðlaunahafanum Samuel Beckett.

 

Leikskáldið Beckett keypti landskika í útjaðri Parísar á sjötta áratugnum og byggði sér þar lítið… [Lesa meira]

Ljón í Lamborghini: Börn olíufursta á Instagram

Margir ættu að kannast við síðuna Rich Kids of Instagram, sem tekur saman yfirgengilegar myndir af sportbílum, kampavínsflöskum og seðlabúntum sem viðbjóðslega ríkt ungt fólk setur inn á ljósmynda- og samskiptasíðuna Instagram. Síðan Arab Kids of Instagram er svipuð, en beinir sjónum sínum einungis að ungu — og viðbjóðslega ríku — fólki frá Sádi-Arabíu, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og… [Lesa meira]

Öldungar Krímstríðsins festir á filmu 1911

Vídjó

Krímstríðið stóð á árunum 1853-1856, en þar tókust á stórveldin Frakkland, Bretland og Ottóman-keisaradæmið annars vegar, og Rússland hins vegar. Barist var hart í sunnanverðu Rússlandi, við bæinn Balaklava á Krímskaga við Svartahaf. Átökin kostuðu mörg hundruð þúsund unga menn lífið.

 

Í myndskeiðinu hér sjáum við upptöku af endurfundi gamalla hermanna sem lifðu stríðið… [Lesa meira]

Ævisögurnar í Kolaportinu: Glaðbeittir járnkarlar

Ævisögur og endurminningabækur er vinsælt bókmenntaform á Íslandi. Þegar gengið er í Kolaportinu – eða í fornbókabúðum – er auðvelt að koma auga á kynstrin öll af nokkurra áratugagömlum ævisögum um gráhærða karla.

 

Það er eitthvað sérlega íslenskt við þessa bókategund. Það er ekki laust við að það sé old spice-lykt af pappírnum. Skoðum nokkrar kápur af þessu tagi. Þeir sem… [Lesa meira]