Messa í Hallgrímskirkju áður en hún var byggð

Prestur messar í Hallgrímskirkju, fljótlega eftir að hafist var handa við byggingu hennar. Mynd frá… [Lesa meira]

Litmyndir frá löngu horfnu Rússlandi

Þetta eru hundrað ára gamlar litmyndir rússneska ljósmyndarans Sergeis Mikhailovich Prokudin-Gorskii sem sýna á ótrúlegan hátt lífið í rússneska keisaradæminu í upphafi tuttugustu aldarinnar. Þær eru ómetanleg heimild um lífið á jaðarsvæðum hins víðfeðma ríkis á þessum tíma. Margir hafa eflaust séð myndirnar sem hér birtast á ýmsum bloggum á síðustu árum. En góð vísa er aldrei of oft kveðin og… [Lesa meira]

Hið sovéska „Let It Be“

Vídjó

Bítlarnir sendu frá sér lagið „Let It Be“ árið 1970. Tveimur árum síðar varð það fyrsta bítlalagið sem fékk spilun í Sovétríkjunum. Kommúnistastjórn landsins hafði lengi álitið vestræna popptónlist siðspillandi og reynt eftir fremsta megni að vernda sovéska alþýðu frá slíkri úrkynjun.

 

Lagið varð strax gríðarlega vinsælt austan Járntjaldsins og brátt kom út stórskemmtileg útgáfa… [Lesa meira]

Herstöðinni í Keflavík lokað haustið 2006

Hér sjáum við formlega lokunarathöfn herstöðvarinnar í Keflavík þann 30. september 2006. Todd Barkley flotaforingi tekur við bandaríska fánanum af Mark Laughton, síðasta höfuðsmanni stöðvarinnar.  Þarna lauk 55 ára samfelldri viðveru Bandaríkahers á Íslandi.

 

Ljósmynd eftir Sally Hodgson, af vef Evrópudeildar… [Lesa meira]

Sestur eða soss?

Einhverjir kynnu í fljótu bragði halda að hér væri á ferðinni fótósjopp-grín, en svo er ekki. Þetta er sebrildið Eclypse, blendingur hests og sebrahests.  Á ensku kallast slíkar skepnur „zorses“ — á íslensku væri þetta ef til vill „sestur“, eða kannski „soss“.

 

Venjulegir hestar og sebrahestar geta ekki afkvæmi í náttúrunni, en fyrir tilstilli manna hafa graðhestar verið settir upp á sebrahryssur gegnum tíðina og úr… [Lesa meira]

Þegar stærsta spendýr jarðar fannst í fjörunni

Vídjó

Í þessum fyrirlestri segir Þorvaldur Þór Björnsson hamskeri á Náttúrufræðistofnun Íslands frá því þegar hann sá um að verka hræ af steypireyði sem rekið hafði á land á Skaga síðsumars árið 2010.

 

Hvalrekinn var einstakt tækifæri því ekki eru til margar beinagrindur af steypireyðum í heiminum, en þessi stærsta spendýrategund jarðar eru því miður… [Lesa meira]