„This is London calling“: Breti talar íslensku á BBC á stríðsárunum

Vídjó

BBC hóf vikulegar útsendingar á íslensku 1. desember 1940. Það tengdist hernáminu sem hófst í maí sama ár. Bretar vildu líklega styrkja tengslin við Íslendinga. Hér talar Gabriel Turville-Petre, breskur norrænufræðingur sem sérhæfði sig í íslenska sagnaarfinum og talaði reiprennandi íslensku. Þessi síðasti þáttur var á dagskrá 25. júní árið 1944.

 

En Bretar voru ekki… [Lesa meira]

Stefið í Jurassic Park þegar það er spilað gríðarlega hægt

Tónskáldið John Williams… [Lesa meira]

Hermann Jónasson forsætisráðherra skýrir þjóðinni frá hernáminu

Vídjó

Hinn 10. maí 1940 urðu þátta­skil í sögu Íslands, þegar breskur her steig á land í Reykjavíkurhöfn og hernam Ísland. Um kvöldið flutti Hermann Jónasson forsætisráðherra útvarpsávarp þar sem hann skýrði þjóðinni frá viðburðum… [Lesa meira]

Magnaðir heimildarþættir um stríðsárin á Íslandi: Hvað gerðist 10. maí 1940?

Hinn 10. maí 1940 urðu þáttaskil í sögu Íslands, en eldsnemma morguns þann dag steig breskur her á land í Reykjavíkurhöfn og hernam Ísland.

 

Átta mánuðir höfðu liðið frá því Þjóðverjar réðust inn í Pólland, sem markaði upphaf heimsstyrjaldarinnar síðari. En á þessum stutta tíma höfðu Þjóðverjar þegar hernumið Danmörku og Noreg og innrás vofði yfir Niðurlöndum og Frakklandi.

 

Það var raunveruleg… [Lesa meira]

Upprunalega „Misirlou“ lagið

Vídjó

Hér heyrum við upptöku af þjóðlaginu „Misirlou“ (á tyrknesku: „Egypskt“) í flutningi Grikkjans Theodotos Demetriades.

Tetos Demetriades

Theodotos ,,Tetos“ Demetriades.

 

Lag þetta á upptök sín í Litlu-Asíu. Ekki er vitað um aldur þess, en flutningur Demetriades í grískum rebetiko-stíl frá árinu 1927 er elsta upptakan sem… [Lesa meira]

„Hvað ef?“: Útvarpsþáttur um hjásögu

Bókin Making History, eftir Stephen Fry, segir frá ungum sagnfræðinema í Cambridge sem sendir getnaðarvarnapillu aftur í tímann í þeirri veiku von að faðir Hitlers gleypi hana og verði í kjölfarið ófrjór. Þegar sagnfræðineminn vaknar daginn eftir kemst hann að því að tilraun hans hafði heppnast. Afleiðingin varð aftur á móti önnur en hann hafði ætlað sér því að í stað Hitlers kom… [Lesa meira]