Barist um Arnarhól: Sagan af byggingu „monthúss“ Seðlabankans

Gríðarlegar deilur voru um byggingu höfuðstöðva Seðlabanka Íslands. Ýmsar teikningar voru lagðar fram og átti upphaflega að byggja stórhýsi bankans við tjarnarbakkann á Fríkirkjuvegi en á endanum var byggingunni fundinn staður við Arnarhól. Halldór Laxness lagðist gegn þeim áformum og kallaði eftir baráttu gegn slíkri „ábyrgðarlausri hégómadýrð“.

 

Seðlabanki Íslands var stofnaður sem sjálfstæð stofnun árið 1961. Deildi hann húsnæði sínu með… [Lesa meira]

Í Berlín fara allir í Photoautomat

Hver kannast ekki við þessar „retro“ sjálfsmyndir sem allir virðast koma með heim eftir ferðalag eða dvöl í Berlín? Þessi höfuðstaður Þýskalands og alls sem er svalt hefur nefnilega að geyma hina upprunalegu ljósmyndaklefa, eða Photoautomat, en þeir eru nú farnir að gera allt vitlaust um víða veröld.

 

Photoautomat-ævintýrið byrjaði sem áhugamál tveggja Berlínarbúa, þeirra Asger Doenst og Ole Kretschmann. Ljósmyndaklefarnir… [Lesa meira]

Íslenskt já takk, eða ha?: Íslensk popplög sem eru ekki íslensk

Síðustu ár hafa Íslendingar verið að vakna upp við vondan draum. Fjölmargar af hinum íslensku dægurlagaperlum frá sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar eru alls ekki íslensk lög, heldur þýddar og staðfærðar útgáfur af erlendum lögum! Íslendingar eru t.d. sérlega lunknir við að breyta ítölskum dægurlögum í íslensk… [Lesa meira]

Bílagæjar og skæspíur: Sænska raggaramenningin

„Orðið „Raggari” er sænskt slanguryrði, sem upphaflega þýddi ökumaður, sem narrar ungar stúlkur upp í bíl sinn, en orðið hefur nú misst fyrri merkingu sína. Nú er það notað um uppreisnargjarna og ódæla unglinga.“ Svo er skrifað um hið sænska menningarfyrirbæri „raggara“ sem vakti athygli blaðamanns Alþýðublaðsins árið 1961.

 

Raggaramenningin er fylgifiskur þeirrar velmegunnar sem Svíar bjuggu við eftir heimsstyrjöldina síðari.… [Lesa meira]

Fljúgandi Sunda-lemúrinn

Í frumskógum Suðaustur-Asíu býr fljúgandi Sunda-lemúrinn. Þetta merkilega dýr er sérlega illa nefnt, því það getur ekki flogið og er auk þess ekki lemúr, enda búa lemúrar aðeins á Madagaskar.

 

Sunda-lemúrinn er spendýr af ætt kólúga og býr í trjánum. Hann sefur á daginn en fer á stjá að nóttu til og nærist þá á laufum, ávöxtum og blómum. Í stað þess… [Lesa meira]

Ljósmynd af stúlku, eftir Arnold Genthe

Autochrome ljósmynd í lit, frá tímabilinu 1911-1930. Myndin var tekin af prússneska-bandaríska ljósmyndaranum Arnold Genthe, en hann var framúrstefnumaður í litaljósmyndun á fyrri hluta 20.… [Lesa meira]