„Augu aldarinnar“: Buenos Aires með augum meistarans Horacio Coppola

Hvaða borg er þetta? Á sumum myndum minnir hún á Gotham, borg Batman, á öðrum á París. Ljósmyndarinn Horacio Coppola tók myndirnar sem við sjáum hér í Buenos Aires, höfuðborg Argentínu, árið 1936. Þær þykja í dag einar merkustu perlur argentínskrar ljósmyndasögu.

 

Horacio Coppola fæddist árið 1906 í Buenos Aires. Hann var sonur ítalskra innflytjenda. Á unglingsárunum fiktaði hann við myndavélar… [Lesa meira]

Sparks-sirkusinn og fíllinn í járnbrautarkrananum

Farandsýningar voru vinsælar alþýðuskemmtanir í Bandaríkjunum allt frá seinni hluta nítjándu aldar fram að kreppunni miklu. Stórir sirkusar á borð við Barnum & Bailey og Hagenbeck-Wallace-sirkusinn ferðuðust með járnbrautum milli bæja og skemmtu fyrir fullum dyrum. Saga okkar hefst þann 12. september 1916 þegar Sparks-sirkusinn kom til Kingsport í Tennessee í Bandaríkjunum.

 

Tímabilið 1890 til 1920 hefur verið nefnt tímabil framsóknar… [Lesa meira]

Læst: The Foods of the Future — as Represented in the Past and Present

Þetta efni er læst með lykilorði. Sláðu inn lykilorð hér að neðan til þess að skoða:

Lykilorð: … [Lesa meira]

Þegar Stallone vann Kalda stríðið

Í mars árið 1985 tók Mikhaíl Gorbatsjov við embætti aðalritara Kommúnistaflokks Sovétríkjanna. Arfleifð hans er fyrst og fremst stefna sem bar lykilorðin „glasnost“ (gagnsæi) og „perestrojka“ (enduruppbygging). Sú stefna lagði nokkurn veginn grunninn að falli Sovétríkjanna og endalokum Kalda stríðsins. Eða hvað?

 

Stefnan var ekki komin í gagnið þegar kvikmyndin Rocky IV var frumsýnd í nóvember árið 1985. Þar má sjá… [Lesa meira]

Rússneski Bangsímon með enskum texta

Vídjó

Sögurnar um Bangsímon eftir Englendinginn A.A. Milne fóru sigurför um heiminn enda eru þær einstaklega fallegar og djúpvitrar barnasögur fyrir alla aldurshópa. Bangsímon hefur verið þýddur á fjöldamörg tungumál og selst í tugmilljónum eintaka um allan heim. Og teiknimyndir Disney um Bangsímon eru með vinsælasta barnaefni sögunnar.

 

Í miðju kalda stríðinu kepptust Bandaríkjamenn og Sovétmenn… [Lesa meira]

Viðtal við „vélmennið“ Ralf Hütter í Kraftwerk á BBC

Vídjó

„Kraftwerk er evrópsk hljómsveit með þýsk vegabréf og við erum á ferðalagi um heiminn,“ segir hið hógværa vélmenni sem mætir í viðtal hjá BBC í stað Ralf Hütter, sem er einn af stofnendum þýsku hljómsveitarinnar Kraftwerk. Hitum upp fyrir tónleika Kraftwerk í Hörpu í haust með því að horfa á þetta skemmtilega myndband.

 

Lesið… [Lesa meira]