Lesandi Lemúrsins er staddur í Japan og sendir þessa mynd: „Þegar stigið er út úr lestinni blasir allt við eins og í öllum öðrum japönskum stórborgum á því herrans ári 2013; glæsileg verslunarhús í neonbaði, flissandi skólastúlkur í pilsum og hnésokkum, brosandi leigubílstjórar með hvíta hanska, kaupsýslumaður með hjólatösku segir félaga sínum brandara sem báðir hlæja að, drepur í sígarettu… [Lesa meira]
Innrásin frá Mars árið 1938: Útvarpsleikritið sem skelfdi milljónir manna
Á sunnudagskvöldi í október árið 1938 urðu milljónir bandarískra útvarpshlustenda skelfingu lostnir þegar fluttar voru fréttir af innrás Marsbúa til jarðar, nánar tiltekið í New Jersey-ríki. Sumir flúðu heimili sín í dauðans ofboði, fleygðu einhverju lauslegu í ferðatöskur og brunuðu burt út í bláinn á bílum sínum.
En í raun var þetta snilldarlegt útvarpsleikrit sem… [Lesa meira]
Afmælisbarn dagsins: 100 ára gamli nasistinn sem var gripinn í Argentínu
Þýski nasistinn og stríðsglæpamaðurinn Erich Priebke er 100 ára gamall í dag, 29. júlí 2013. Fórnarlamba hans var minnst í dag.
Hann er nasisti úr röðum SS-sveitanna sem bjó í Argentínu áratugum saman á flótta undan réttvísinni.
Erich Priebke var yfirmaður hjá SS-sveitum Adolfs Hitlers. Hann hefur játað aðild að fjöldamorðunum í Ardeatine-hellunum á Ítalíu í seinni heimsstyrjöldinni. SS-menn drápu… [Lesa meira]
La Cabina frá 1972: Klassísk spænsk hryllingsstuttmynd um mann sem festist inni í símaklefa
Getið þið ímyndað ykkur martröð um símaklefa? Símaklefar eru ekki sérstaklega ógnvekjandi fyrirbæri, eða hvað? Hvað ef þú myndir læsast inni í símaklefa? Og kæmist ekki út sama hvað? Það er töluvert hræðileg tilhugsun.
Og það er svið hinnar klassísku spænsku hryllingsstuttmyndar La Cabina eða Símaklefans. Það er verðlaunamynd frá 1972 eftir leikstjórann Antonio Mercero.
Eistneski stuðkóngurinn Üllar Jörberg snýr aftur
Lesendur Lemúrsins muna kannski eftir eistneska söngvaranum Üllar Jörberg. Hann er kominn yfir sjötugt og hefur gefið út yfir tuttugu plötur á skrautlegum ferli. Og hér er annað lag með meistaranum. Stórkostlegt… [Lesa meira]
Litla-Ítalía í New York, um 1900
Hér sjáum við litaða ljósmynd af Mulberry-stræti í ítalska hverfinu í New York. Myndin er tekin um… [Lesa meira]


