Hiroshima station

Lesandi Lemúrsins er staddur í Japan og sendir þessa mynd: „Þegar stigið er út úr lestinni blasir allt við eins og í öllum öðrum japönskum stórborgum á því herrans ári 2013; glæsileg verslunarhús í neonbaði, flissandi skólastúlkur í pilsum og hnésokkum, brosandi leigubílstjórar með hvíta hanska, kaupsýslumaður með hjólatösku segir félaga sínum brandara sem báðir hlæja að, drepur í sígarettu… [Lesa meira]

Innrásin frá Mars árið 1938: Útvarpsleikritið sem skelfdi milljónir manna

Vídjó

Á sunnudagskvöldi í október árið 1938 urðu milljónir bandarískra útvarpshlustenda skelfingu lostnir þegar fluttar voru fréttir af innrás Marsbúa til jarðar, nánar tiltekið í New Jersey-ríki. Sumir flúðu heimili sín í dauðans ofboði, fleygðu einhverju lauslegu í ferðatöskur og brunuðu burt út í bláinn á bílum sínum.

 

En í raun var þetta snilldarlegt útvarpsleikrit sem… [Lesa meira]

Afmælisbarn dagsins: 100 ára gamli nasistinn sem var gripinn í Argentínu

Vídjó

Þýski nasistinn og stríðsglæpamaðurinn Erich Priebke er 100 ára gamall í dag, 29. júlí 2013. Fórnarlamba hans var minnst í dag.

 

Hann er nas­isti úr röðum SS-​​sveitanna sem bjó í Argentínu áratugum saman á flótta undan réttvísinni.

 

Erich Priebke var yfir­maður hjá SS-​​sveitum Adolfs Hitlers. Hann hefur játað aðild að fjölda­morð­unum í Ardeatine-​​hellunum á Ítalíu í seinni heims­styrj­öld­inni. SS-​​menn drápu… [Lesa meira]

La Cabina frá 1972: Klassísk spænsk hryllingsstuttmynd um mann sem festist inni í símaklefa

Getið þið ímyndað ykkur martröð um símaklefa? Símaklefar eru ekki sérstaklega ógnvekjandi fyrirbæri, eða hvað? Hvað ef þú myndir læsast inni í símaklefa? Og kæmist ekki út sama hvað? Það er töluvert hræðileg tilhugsun.

Og það er svið hinnar klassísku spænsku hryllingsstuttmyndar La Cabina eða Símaklefans. Það er verðlaunamynd frá 1972 eftir leikstjórann Antonio Mercero.

… [Lesa meira]

Eistneski stuðkóngurinn Üllar Jörberg snýr aftur

Vídjó

Lesendur Lemúrsins muna kannski eftir eistneska söngvaranum Üllar Jörberg. Hann er kominn yfir sjö­tugt og hefur gefið út yfir tutt­ugu plötur á skraut­legum ferli. Og hér er annað lag með meistaranum. Stórkostlegt… [Lesa meira]

Litla-Ítalía í New York, um 1900

Hér sjáum við litaða ljósmynd af Mulberry-stræti í ítalska hverfinu í New York. Myndin er tekin um… [Lesa meira]