David Lynch kynnir sögu súrrealískra bíómynda á BBC

Vídjó

David Lynch sá árið 1987 um þátt um sögu súrrealískra kvikmynda á BBC.

 

BBC Arena er einn helsti menningarþáttur Bretlands en þýski leikstjórinn Werner Herzog hefur kallað þessa vönduðu þætti „vin í geðveikshafi sjónvarpsins“.

 

Lynch hafði á þessum tíma gert kvikmyndirnar Blue Velvet, Eraserhead, Dune og Elephant Man og hafði með þeim þegar náð frægð… [Lesa meira]

3. þáttur: Dularfullar eyjar, Nixon í Kína og höfuðlagsfræði í íslenskri kennslubók

Þriðji þáttur Lemúrsins á Rás 1 var fluttur 15. október. Lemúrinn fjallar um afskekktar smáeyjar í heimshöfunum, dularfullt hvarf þýskrar barónessu á Galapagos, um sögulega heimsókn Richards Nixon Bandaríkjaforseta til Kína þar sem bæði borðtennis og pöndur koma við sögu, og um vafasama íslenska náttúrufræðibók frá nítjándu öld.

 

Hlustið hér á þáttinn (mp3-​​skrá hjá hlað­varpi RÚV).

 

Lemúrinn er á hlaðvarpinu.

 

Umsjónarmenn eru Helgi… [Lesa meira]

Sinfónían sem var „hljóðræn andlitsmynd af Stalín“

Vídjó

Tíunda sinfónía Sjostakóvitsj var frumflutt í Pétursborg (þá Leníngrad) í desember 1953, skömmu eftir andlát Stalíns. Í verkinu dregur tónskáldið upp mynd af lífinu í Ráðstjórnarríkjunum á tímum harðstjórans fræga. Í skjölum Sjostakóvitsj kemur fram að annar hluti sinfóníunnar sé eins konar „hljóðræn andlitsmynd af Stalín“, enda er verkið hlaðið tilheyrandi drunga og spennu. Hér heyrum… [Lesa meira]

Agneta Westlund var fórnarlamb elgs

Konungur sænska skógarins, elgurinn, er tilkomumikið dýr. Hann er bæði háfættur og tignarlegur en einnig stórhættulegur. Argur elgur getur léttilega orðið fullvaxta manneskju að bana.

 

Í september árið 2008 fannst Agneta Westlund látin við vatnið Frisksjön í Loftahammar í Svíþjóð. Bar lík hennar þess merki að hafa verið beitt miklu afli og beindust sjónir lögreglunnar nánast samstundis að eiginmanni Agnetu, Ingemar… [Lesa meira]

Breska ljóðskáldið Philip Larkin: „Mamma þín og pabbi fokka þér upp“

„Þau fokka þér upp, mamma þín og pabbi“. Svona hljómar fyrsta línan í frægasta ljóði breska skáldsins Philip Larkin. Ljóðið heitir This Be The Verse. Inntakið er ægilega svartsýnt en eins og Þorsteinn Gylfason heimspekingur skrifaði „er dálítið til í því“. Allavega nógu mikið til þess að breskur dómari vitnaði í það í harðvítugu forræðismáli.

 

Philip Larkin (1922-1985) starfaði lengst af… [Lesa meira]

Magnaðar myndir úr heimshornaflakki Nóbelsverðlaunahafans

Martin Karplus, prófessor við háskólana í Harvard og Strassborg, er handhafi Nóbelsverðlaunanna í efnafræði í ár, ásamt Michael Levitt og Arieh Warshel. Saman þróuðu þeir hugbúnað á áttunda áratuginum sem gerir efnafræðingum kleift að skilja flókin efnahvörf, eða „kortleggja leyndardóma efnafræðinnar“ eins og það er orðað í tilkynningu sænsku Nóbelsnefndarinnar.

 

En Karplus er ekki einungis afburða eðlisfræðingur heldur einnig hæfileikaríkur ljósmyndari.

 

Martin… [Lesa meira]