Königsberg var öldum saman eitt helsta menningar- og stjórnsýslusetur Prússlands og var meðal annars heimaborg þýska heimspekingsins Immanuel Kant. Borgin er nú hluti af Rússlandi og heitir í dag Kalíningrad í höfuðið á bolsévikanum Mikhail Kalínín. Sovétríkin lögðu borgina undir sig á síðasta ári seinni heimsstyrjaldar og úthýstu þýsku íbúunum eftir mannskæð átök við hersveitir Þriðja ríkisins.
Königsberg varð fyrir miklum skemmdum í átökunum og forni 13. aldar kastalinn sem stóð í miðborginni var illa sprengdur í umsátri Rauða hersins. Að stríðinu loknu töldu sovésk yfirvöld kastalann eins konar táknmynd prússnesks fasisma og lögðust gegn því að hann yrði endurbyggður.
Þess í stað voru rústirnar rifnar og módernísk nýbygging reist í byrjun 8. áratugarins skammt frá staðnum þar sem kastalinn áður stóð. Það var Sovét-húsið svokallaða, skólabókardæmi um sovéskan brútalisma, hannað af úkraínska arkítektinum Yulian Shvartsbreim.
Bygging Sovét-hússins hófst árið 1970 en snemma í byggingarferlinu komu ýmis vandamál í ljós. Grunnurinn, sem stóð á mýri, reyndist ekki geta borið allar 28 hæðirnar sem gert var ráð fyrir í upprunalegu teikningunum, og því var aðeins 21 hæð byggð. Verkefnið dróst á langinn vegna fjárhagsörðugleika og upp úr 1985 misstu ráðamenn á svæðinu áhuga á áframhaldandi uppbyggingu. Byggingin stóð því hálfkláruð árum saman. Árið 2005, á 60 ára afmæli Kalíningrad (750 ára afmæli Königsberg) var húsið málað ljósblátt og gluggarnir kláraðir í tilefni af heimsókn Vladimirs Pútin Rússlandsforseta. Mörgum þykir framhliðin líkjast höfðinu á risavöxnu vélmenni.
Atli Viðar Þorsteinsson gerði sér ferð til Kalíningrad um árið og tók nokkrar myndir af Sovét-húsinu sem Lemúrinn birtir með góðfúslegu leyfi.
Eftirfarandi myndir eru af Wikipedíu og sýna húsið áður en það var gert upp árið 2005: