Hollensk kona hefur skotið á skotskífur á útimörkuðum á hverju ári frá því hún var 16 ára árið 1936. Í hvert skipti sem hún hittir í mark tekur sjálfvirk myndavél ljósmynd af henni. Því eru til myndir af konunni á öllum æviskeiðum hennar í sömu stellingum.
Ria van Dijk stendur grafkyrr og einbeitt. Hún tekur í gikkinn og skýtur. Hún hittir þráðbeint í miðju skotskífunnar. Um leið tekur sjálfvirk myndavél ljósmynd af henni. Myndina tekur hún heim með sér, enda eru það verðlaunin fyrir að hitta í mark.
Ria van Dijk elskar skotfimi og fer að minnsta kosti einu sinni á ári á útimarkaðinn til að skjóta. Hún hitti fyrst í mark árið 1936, þegar hún var 16 ára stúlka í Tilburg, og eignaðist um leið fyrstu myndina af sér á skotpallinum. Hún er á tíræðisaldri í dag og fer enn að skjóta.
Vegna þessa áhugamáls hennar hefur hún óafvitandi safnað myndum af sér frá öllum æviskeiðum þar sem hún stendur í sömu stellingunni, ár eftir ár og miðar á skotmarkið. Eina undantekning er að engar myndir eru skiljanlega til frá heimsstyrjaldarárunum 1939 til 1945.
En að þeim árum frátöldum eru til myndir frá hverju ári. Myndirnar voru ekki bara teknar í heimabæ Riu, heldur einnig í nærliggjandi bæjum. Ria van Dijk er löngu orðin fræg í sínu heimahéraði fyrir einstaka skotfimi sína.
Ljósmyndararnir Erik Kessels og Joep Eljkens söfnuðu myndunum saman með leyfi Riu van Dijk og gáfu út í glæsilegri bók sem spannar 74 ár. Þeir segja að ljósmyndirnar segi á óvæntan hátt ævisögu manneskju frá óvenjulegu sjónarhorni. Þær leyfi okkur að skyggnast inn í ólík tímabil í lífi hennar í síbreytilegu umhverfi. Um leið beri þær vitni um þróun ljósmyndatækninnar. Bókin kom út í bókaflokknum In Almost Every Picture en Lemúrinn hefur áður fjallað um bók í þeim flokki sem fjallaði um svartan hund sem myndaðist illa.
Hér sjáum við nýlegar myndir af hinni skotfimu konu ásamt forleggjurum og velunnurum.