Häxan er sænsk-dönsk „heimildarmynd“ frá 1922. Danski leikstjórinn Benjamin Christensen gerði hana á þögla tímanum en myndin er öðrum þræði rannsókn hans á Mallus Maleficarum, þýskri galdraofsóknabók frá 15. öld.
Skoðað er hvernig geðsjúkdómar og aðrir kvillar stuðluðu að hinum hörmulegu galdraofsóknum í Evrópu á öldum áður þegar saklaust fólk var miskunnarlaust brennt á báli fyrir meinta galdra. Hér er þessi kynngimagnaða mynd, sem lengi var bönnuð. Hún var dýrasta kvikmynd Svíþjóðar þegar hún var gerð.
Uppboðshaldarinn Heritage selur nú stórkostlegar ljósmyndir frá þessari kvikmynd.
Barði Jóhannsson í Bang Gang gaf árið 2006 út disk með tónlist við Häxan. Hér er áhugaverð umfjöllun um diskinn. Fyrsti hluti tónverksins: