Hraði og spenna voru einkunnarorð spurningaleiksins Ans ans á Stöð 2 árið 1987. Þar mættist fjölmiðlafólk í æsispennandi leik. Hljóð og mynd í þessum þætti er mjög skemmtilegt. Magnús Egilsson sá um hljóð í þættinum. Vel gert hjá honum. Umsjónarmenn voru Guðný Halldórsdóttir og Halldór Þorgeirsson, spyrlar Óskar Magnússon og Agnes Johansen. Nú hefur einhver hlaðið þáttunum upp á YouTube, sem er frábært framlag fyrir mannkynið allt.
Bylgjan gegn Helgarpóstinum:
Sigurður G. Tómasson og Adda Steina Björnsdóttir á Bylgjunni og Egill Helgason og Ólafur Bjarni Guðnason á Helgarpóstinum.
Þjóðviljinn gegn Morgunblaðinu:
Guðmundur Rúnar Heiðarsson og Hrafn Jökulsson á Þjóðviljanum og Ágúst Einarsson og Ólafur Stephensen á Morgunblaðinu.