Ljóshærður finnskur hermaður biður til drottins á þessari þjóðlegu áróðursmynd frá 1940. Vetrarstríðið milli Finnlands og Sovétríkjanna stóð þá sem hæst. Finnska ríkið rak á þessum tíma kröftuga áróðursherðferð gegn sovésku ógninni, eins og sjá má á eftirfarandi myndum.
![Finnskur liðsforingi með Suomi M31 hríðskotabyssu.](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/2013/05/postal.jpg)
Finnskur liðsforingi með finnska Suomi M31 hríðskotabyssu, en þær eru sagðar bestu hríðskotabyssurnar sem framleiddar voru á árum seinni heimsstyrjaldar.
![Forseti lýðveldisins kallar á alla Finna í herþjónustu, þar sem landið er komið í stríð.](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/2013/05/000bb46aaa7b1e2db834dfa.jpg)
Forseti lýðveldisins kallar alla Finna til herþjónustu, þar sem landið er komið í stríð við Sovétríkin.
Heimild: DigitalPhotoCollection: Propaganda Posters During World War II