„Með Waffen-SS og Norsku herdeildinni gegn sameiginlega óvininum …. gegn bolsévisma.“
Mynd þessi var gefin út af leppstjórn Vidkun Quislings í Noregi á tímum seinni heimsstyrjaldar. Hún var teiknuð af Harald Damsleth, en hann er best þekktur fyrir áróðursmyndirnar sem hann teiknaði fyrir Nasjonal Samling, nasistaflokk Quislings.
Damsleth var norskur þjóðernissinni, meinilla við bolsévika, og gekk snemma í norska nasistaflokkinn. Tengsl hans við Þýskaland voru töluverð — hann hafði stundað nám þar í landi sem ungur maður og var auk þess giftur þýskri konu. Í stríðinu var hann um tíma blaðamaður á austur-vígstöðvunum, líkt og Björn Sv. Björnsson.
Eftir stríðið var stuðningsmönnum nasista í Noregi gert að sæta harðri refsingu. Quisling, formaður norska nasistaflokksins, var dæmdur til dauða og tekinn af lífi, en Damsleth sat tvö ár í fangelsi.
Í heildina teiknaði Damsleth um 200 áróðursmyndir á stríðsárunum. Nokkrar þeirra sjást hér fyrir neðan. Mikið er gert úr arískum eiginleikum Norðmanna, víkingaarfleifðinni, norrænni frændsemi við Þjóðverja og svo sameiginlega óvininum, illum rauðliðum og bolsévikum í austri.

,,Víglínan gegn bolsévisma. Hvar stendur þú í dag?“ Þarna berjast hermenn Noregs, Finnlands og Þýskalands við stóra rauða skrímslið í austri.

,,Sameiginleg víglína gegn bolsévisma.“ Þarna sjást fánar Þýskalands, Finnlands, Noregs, Danmerkur, Hollands og Belgíu.

Sovéskar flugvélar yfir Noregi, landið í logum: ,,Óskadraumurinn getur orðið að martröð. Og hér sefur þú.“

SS-víkingur um borð í víkingaskipi: ,,SS-dagurinn 1943, 14.-15. ágúst í Osló. Germanska SS, Noregi.“

,,Í gegnum baráttu og vinnu, í áttina að bjartari tímum.“ Fjöll Noregs sjást varla fyrir rauðri móðu Sovét-úlfa.

Norrænn garpur beinir sverði og skildi gegn óvinum Noregs: ,,Norræna víglínan gegn óvinum landsins. Rauða víglínan, skelfing, morð, hermdarverk.“