Þessi ljósmynd var tekin í indverska héraðinu Vestur-Bengal árið 1903, á hátindi breska heimsveldisins. Kona frá Himalajahéraðinu Sikkim burðast með breskan kaupmann á bakinu.
Myndin birtist í safni nokkurra áhugaverðra ljósmynda á síðu Flickr-notendans Vintage Lulu. Þar segir: „Þetta er einstök röð mynda sem líklega voru teknar af frænda mínum Pandy (1875-1951) þegar hann var sendur til Kalkútta á Indlandi. Hann var kaupmaður hjá Ralli Brothers, frægu bresk-grísku verslunarfélagi í Manchester. Ljósmyndirnar fanga hið sérstaka andrúmsloft Indlands á dögum bresku nýlendustjórnarinnar.“
Sjálfstæðishetja Indverja, Mahatma Gandhi, var nýkominn á fertugsaldurinn þegar þessar myndir voru teknar og hafði ekki hafið baráttu sína. 44 ár liðu áður en Indverjar hlutu sjálfstæði.