Þegar Diego Maradona lék fyrir Tottenham

Nei, kæru lesendur. Þetta er ekki grín. Diego Maradona, sem er af mörgum talinn besti knattspyrnumaður allra tíma, lék eitt sinn með enska liðinu Tottenham Hotspur!

 

Því miður fyrir Tottenham-aðdáendur var það einmitt málið, hann lék bara í eitt skipti.

 

Um vorið 1986 voru landsliðsmenn þátttökuþjóða á Heimsmeistarakeppninni í Mexíkó að undirbúa sig fyrir stærsta íþróttaviðburð ársins. Argentínumenn voru þar engin undantekning.… [Lesa meira]

Chili-Klaus: Daninn sem gerir grín að sársaukamörkum munnsins

Claus Pilgaard er orðinn að költ-hetju í Danmörku. Hann hefur starfað sem tónlistarmaður og skemmtikrafur um árabil en fyrri störf hans hafa minnst með nýtilkomnar vinsældir að gera.

 

Claus er nefnilega chili-fíkill.   Í byrjun ágústmánaðar 2013 prófaði hann að setja myndskeið af sjálfum sér á veraldarvefinn, þar sem hann gerði sér lítið fyrir og borðaði heilan habanero-pipar. Myndskeiðið má sjá hér:

 

… [Lesa meira]

22. þáttur: Draumar, martraðir og draumkenndur uppruni saumavélarinnar

Lemúrinn veltir fyrir sér þýðingu og tilgangi drauma, fjallar um draumkenndan uppruna saumavélarinnar og gluggar í forngrískt… [Lesa meira]

Var Lost endurvinnsla á þáttunum „The New People“ frá 1969?

Þáttaröð um strandaglópa á dularfullri paradísareyju í Kyrrahafi sem finna yfirgefin hús og tilraunastofur? Nei, hér er ekki verið að tala um Lost.

 

Margir muna eftir nafninu Aaron Spelling. Það er kannski greypt í huga þeirra sem horfðu mikið á sjónvarp á tíunda áratugnum. Hann var framleiðandi Beverly Hills, 90210 sem nutu mikilla vinsælla upp úr 1990. Þættirnir skörtuðu dóttur hans… [Lesa meira]

Rockefeller-feðgarnir

Hér sést auðkýfingurinn og viðskiptamógúllinn John D. Rockefeller, ásamt syni sínum John D. Rockefeller yngri, árið 1915.

 

Rockefeller stofnaði olíufyrirtækið Standard Oil og gerði það á tuttugu árum að stærsta fyrirtæki bandaríkjanna. Hann varð í kjölfarið fyrsti bandaríski milljarðamæringurinn og ríkasti maður veraldar —  ríkasti maður allra tíma, ef andvirði eigna hans er framreiknað yfir í núverandi gengi dollarans.

 

Lemúrinn vekur athygli… [Lesa meira]

Maðurinn sem varðveittist í 2000 ár

Árið 1950 fundust mjög heillegar mannvistarleifar í mýri í Tollund, sem er í grennd við Silkeborg á Jótlandi í Danmörku. Mýrarmaður þessi var uppi fyrir meira en 2000 árum síðan, í kingum þriðju öld fyrir Krist. Súrefnisleysi og sýran í mónum hafði varðveitt líkið á ótrúlega góðan hátt. Andlitið sést til að mynda mjög vel. Röngtenmyndir sýndu ennfremur að flest… [Lesa meira]