Lemúrinn hefur fjallað töluvert um glímu, til dæmis um afrek Jóhannesar á Borg og það þegar bandarískar stúlkur voru hvattar til að læra þessa forníslensku bardagalist til að sigrast á þjófum og öðrum fautum. Hér sjáum við skemmtilegt myndskeið frá fréttamyndasmiðjunni British Pathé frá 1932 þar sem glíman er kynnt til… [Lesa meira]
Tónlist í tilefni þjóðhátíðardags Namibíu
Í dag, 21. mars, eru liðin 24 ár síðan Namibía öðlaðist sjálfstæði frá Suður-Afríku aðskilnaðarstefnunnar. Suður-Afríka tók landið yfir eftir fyrri heimsstyrjöld, en landið var áður þýsk nýlenda. Sjálfstæðið kom loksins árið 1990 í kjölfar langdregins skæruhernaðar og erfiðra samningaviðræða Sameinuðu þjóðanna.
Lemúrinn óskar Namibíumönnum til hamingju með daginn! Til þess að halda upp á þjóðhátíðardaginn skulum við horfa og hlýða… [Lesa meira]
Sovéskur njósnari hlær við eigin aftöku
Mynd þessi var tekin í Rukajärvi í Austur-Karelíu í nóvember 1942. Hún sýnir finnskan hermann taka sovéskan njósnara af lífi með byssu. Sovétmaðurinn hlær og mætir örlögum sínum með bros á vör. Hvað á maður annars til bragðs að taka á svona stundu?
Þess ber að geta að myndin er ekki úr Vetrarstríðinu, heldur frá þeim tíma er Finnland var gengið í lið… [Lesa meira]
Bandarískir vinir Finnlands gerðu áróðursmynd um Vetrarstríðið 1939
Lemúrinn hefur áður fjallað um Vetrarstríðið, en það hófst haustið 1939 þegar Sovétríkin réðust inn í Finnland. Stríðið stóð í rúma þrjá mánuði og varð 150 þúsund manns að bana. Orsakir átakanna má rekja til Stalíns, harðstjórans ógurlega, sem vildi ná undir sovésk yfirráð þau svæði sem runnið höfðu frá Rússum til Finna við undirritun… [Lesa meira]
Heimsfrægur rithöfundur reynir valdarán vopnaður samúræjasverði
Yukio Mishima var einn dáðasti rithöfundur Japans á tuttugustu öld. Bækur hans voru vinsælar víða um heim og það kom sterklega til greina að hann hlyti bókmenntaverðlaun Nóbels. Mishima var einnig dáður í heimalandi sínu sem leikari og ljósmyndafyrirsæta. Allt þetta breyttist 25. nóvember 1970 þegar þessi þjóðhetja Japana varð að þjóðarskömm.
Mishima fæddist í Tókýó árið 1925. Í æsku bjó… [Lesa meira]

