Nývaknaðir hermenn kínverska hersins við morgunæfingar í þrjátíu stiga frosti í Heilongjiang-sýslu í norðausturhluta í Kína. Kínverski herinn er fjölmennasti her heims, með eina og hálfa milljón manns undir vopnum.
Ljósmynd: … [Lesa meira]
Nývaknaðir hermenn kínverska hersins við morgunæfingar í þrjátíu stiga frosti í Heilongjiang-sýslu í norðausturhluta í Kína. Kínverski herinn er fjölmennasti her heims, með eina og hálfa milljón manns undir vopnum.
Ljósmynd: … [Lesa meira]
Argentínumaðurinn Jorge Luis Borges var einn áhrifamesti rithöfundur tuttugustu aldar. Hann var gríðarlegur lestrarhestur og lýsti sjálfum sér sem lesanda fremur en höfundi. Borges var fjölfræðingur, þekkti sögu og bókmenntir fjarlægra landa.
Hann heillaðist snemma af Íslendingasögunum og varð fyrir miklum áhrifum af þeim. Af þeim sökum ferðaðist Borges nokkrum sinnum til Íslands á áttunda áratugnum. Á þeim árum var Borges, sem… [Lesa meira]
Þýski Tiger-skriðdrekinn er oft sagður einn besti skriðdrekinn sem framleiddur var á árum seinni heimsstyrjaldar. Fyrstu eintökin komu úr verksmiðjunum árið 1942, en Þýskaland hafði sumarið áður ráðist inn í Sovétríkin og gríðarstórir herir stórveldanna tveggja börðust upp á líf og dauða á austurvígstöðvunum.
Nýi Tiger-skriðdrekinn var flókin maskína og Þriðja ríkið þurfti að þjálfa fjölda ungra manna í að stýra þessu hertæki. Nýliðar voru þjálfaðir… [Lesa meira]
Hedy Lamarr, ein eftirsóttasta leikkona heims á fjórða og fimmta áratugnum, lék ekki aðeins í Hollywood-myndum. Hún var líka uppfinningamaður og þróaði tækni sem var vísir að mikilvægum uppfinningum á borð við þráðlaust internet. Fáir vissu af þessari iðju leikkonunnar sem hún stundaði við föndurkrókinn heima hjá sér.
Á bás einum í Kolaportinu liggur rykug mappa. Hún geymir gamlar leikaramyndir. En eitt… [Lesa meira]
Gila-skrímslið er eitruð eðlutegund sem býr í Bandaríkjunum og Mexíkó. Eðlan er stór og þunglamaleg, og getur orðið allt að 60 cm löng og vegið 2-3 kíló. Gila-skrímslið býr í eyðimörkinni og þekkist á svörtum kroppnum sem er alsett bleikum, gulum og appelsínugulum dílum.
Bit dýrsins er sagt sérstaklega sársaukafullt en það er hins vegar mjög sjaldgæft að menn verði fyrir… [Lesa meira]
Árið 1966, löngu áður en talað var um fyrirbærið „selfie“, tók Bítillinn George Harrison skemmtilegar sjálfsmyndir á Indlandi. Í ferðinni stunduðu George og konan hans Pattie jóga og hann æfði sig á sítar undir handleiðslu meistarans Ravi Shankar.
Hér sjáum við þessar myndir, sem hann tók með „fisheye“-linsu.
George væri góður á Instagram!