Var kynlífið betra í Austur-Þýskalandi?

Heimildarmyndin Er kynlífið betra hjá kommúnistum? (e. “Do Communists Have Better Sex”) ber saman viðhorf, stefnur og hugmyndir um kynlíf í Austur- og Vestur-Þýskalandi á árunum eftir seinni heimsstyrjöld. Fjölmargir kynfræðingar hafa komist að því að íbúar Þýska alþýðulýðveldisins, eða Austur-Þýskalands, áttu mun innihaldsríkara og ánægjulegra kynlíf en íbúar Sambandslýðveldins í vestri. Ástæðuna má fyrst og fremst rekja til stöðu kvenna… [Lesa meira]

Flóttadulargervi Adolfs Hitlers

Skömmu eftir innrás bandamanna í Normandí, þann 6. júní árið 1944, fór valdamesta fólkið innan bandarísku leyniþjónustunnar OSS, Office of Strategic Services, að velta fyrir sér þeim möguleika að kanslari Þýskalands, Adolf Hitler, kynni að flýja fyrir lok síðari heimsstyrjaldar.

 

Var brugðið á það ráð innan þessa forvera leyniþjónustunnar CIA að fá förðunarmeistara frá New York, Eddie Senz að nafni, til… [Lesa meira]

Bítlarnir vildu leika í Hringadróttinssögu

Fróði: Paul McCartney. Sómi: Ringo Starr. Gandalfur: George Harrison og síðast en ekki síst Gollrir: John Lennon.

 

Bítlarnir brölluðu ýmislegt þegar líða tók á feril hljómsveitarinnar. Fyrir utan að senda frá sér hvert meistarastykkið á fætur öðru stofnuðu þeir útgáfufyrirtækið Apple Records árið 1968. Samfara því starfræktu þeir lítið kvikmyndaver, Apple Films. Myndirnar Magical Mystery Tour og Yellow Submarine urðu þar… [Lesa meira]

„Ljóta hertogaynjan“ frá 16. öld sem rataði alla leið til Lísu í Undralandi

„Ljóta hertogaynjan“ er frægasta málverk flæmska málarans Quentin Matsys en hann málaði verkið í kringum árið 1513. Verkið er illkvittnislegt og á að sýna ljóta konu sem enginn vill giftast. Hún heldur á litlu rauðu blómi, sem þá var tákn fyrir trúlofun. Sama andlit sést í nokkrum teikningum Leonardos da Vinci, sem var samtímamaður Matsys.

 

Ekki liggur ljóst fyrir hvor teiknaði… [Lesa meira]

Tóbakssósur, tóbaksstólpípur og svitameðul: Tóbakslækningar á Íslandi

Í dag eru flestir á þeirri skoðun að tóbak sé argasta skaðræðisjurt og neysla hennar sé engum til framdráttar. Svo var þó ekki endilega á liðnum öldum. Jón Ólafsson Indíafari er talinn hafa verið fyrsti Íslendingurinn til að neyta tóbaks snemma á 17. öld en seinna á þeirri öld fór tóbak að berast til Íslands.

 

Tóbak var ýmist reykt, tuggið eða… [Lesa meira]

„Poppedreng“: Páfagaukur Jóns Sigurðssonar var „íhlutunarsamur um stjórnmál“

Á heimili Jóns Sigurðssonar forseta og Ingibjargar Einarsdóttir í Kaupmannahöfn var myndarlegur páfagaukur í búri sem bar nafnið Poppedreng. Lesbók Morgunblaðsins ræddi við Indriða Einarsson rithöfund árið 1933 um minningar hans um heimilishagi Jóns og Ingibjargar. Indriði var oft gestur á heimilinu og segir frá ýmsu og þar á meðal frá þessum merka páfagauki:

 

Til hægri handar við innganginn gegnt [sporöskjulaga] borði,… [Lesa meira]