„Vakna þú íslenska þjóð”: Nasistaáróður á íslensku frá útvarpi Berlín árið 1944

Vídjó

Óþekktur Íslendingur les áróðursskilaboð frá útvarpi Þriðja ríkisins 10. desember 1944. Nasistar fluttu áróður á ýmsum tungumálum með útvarpsbylgjum sínum og voru skilaboð flutt á íslensku um nokkurt skeið.

 

Útsendingar byrjuðu svona: „Hér er Berlín! Hér er Berlín! Þýskaland útvarpar daglega á íslensku frá kl. 1745 til 18 samkvæmt íslenskum tíma.“

 

Upptakan er fengin af… [Lesa meira]

Ungi saxófónleikarinn Bill Clinton

Hér sést ungur Bill Clinton með saxófón.

 

Clinton var ríkisstjóri Arkansas-fylkis 1983-1992 og svo forseti bandaríkjanna 1993-2001. Í sjálfsævisögu sinni lætur hann eftirfarandi orð falla um hljóðfæraleik sinn:

 

Á mínu sextánda ári ákvað ég að gerast þátttakandi í opinberu lífi og sækjast eftir kjöri sem fulltrúi þjóðarinnar. Ég elskaði tónlist og hélt að ég gæti orðið mjög góður, en ég… [Lesa meira]

Vatnsmálverk af heræfingu Breta við Lágafell sumarið 1941

Vatnsmálverk þetta var málað af bretanum E. Prentis árið 1941 á tímum hersetunnar. Málverkið sýnir æfingar 143. deildar breska hersins við Lágafell í Mosfellsbæ.

 

Verkið er á bakhliðinni merkt “A Troop / 25 pdr going into action”, en það er vísun í fallbyssuna fyrir miðju.

 

Heimild: Kent Yeomanry Archives, Bexleyheath.

 

Tengt efni: „Þar búa spámenn og englar“: Breskur stríðslistamaður á Íslandi,… [Lesa meira]

Breskur hermaður og braggarnir

Mynd þessi er úr persónulegu ljósmyndasafni breska hermannsins J.online casino M. Swinard, en hann tók þátt í hernámi og hersetu Breta á Íslandi 1940-1942. Hér sést mynd af honum í Reykjavík, að halla sér upp við Bedford-bifreið. Braggarnir sjást í… [Lesa meira]

Íslenski nasistinn útvarpar heim til Íslands frá Kákasus

Vídjó

Íslenski nasistinn Björn Sv. Björnsson, náði, eins og Lemúrinn ræddi um í gær, talsverðum frama innan SS. Hann starfaði mestan part við stríðsfréttaritun og kynningu á málstað þriðja ríkisins. Hér heyrum við útvarpsþátt frá honum sem hann tók upp á íslensku innan landamæra Sovétríkjanna í síðari heimsstyrjöldinni.

 

Þættinum var útvarpað til Íslands frá… [Lesa meira]

Björn Sv. Björnsson: Hinn „óaðfinnanlegi“ íslenski nasisti

Björn Sv. Björnsson var einn þeirra Íslendinga sem gengu í lið með nasistum í stríðinu. Lemúrinn birtir gögn um feril Björns í hinum alræmdu sveitum SS sem hafa ekki sést víða.

 

Yfirmaður í SS skrifaði meðmælabréf um hann og lýsti Birni sem manni með „óaðfinnanlegan persónuleika og traustar hugsjónir“ og að hann hafi reynst „vel í bardaga sem hermaður við… [Lesa meira]