Snjór, snjór, snjór

Reykjavík, 6. mars 2013 (ljósmynd: Daníel Freyr Sólveigarson).

 

Snjór, snjór, snjór.

 

Snjór í lofti og snjór á jörð.

 

Svo hefst fyrsta bindið í Sögu borgaraættarinnar eftir Gunnar Gunnarsson, Ormarr Örlygsson. Þau upphafsorð eiga vel við í… [Lesa meira]

Píramídinn: Rússneskur draugabær á Svalbarða

Á eyjaklasanum Svalbarða í Norður-Íshafi er að finna nyrsta byggða ból í veröldinni. Mikið norðar er ekki hægt að komast. Svalbarði er um 1.500 kílómetrum norðan við heimskautsbaug og aðeins 10 breiddargráðum frá sjálfum Norðurpólnum. Stærsti þéttbýlisstaðurinn og höfuðstaður eyjanna er norski námabærinn Longyearbyen, en þar búa um tvö þúsund manns. Hann er nyrsti bærinn á þessari jarðkringlu en staðsetning… [Lesa meira]

Jan Mayen: Dularfulla eyjan í norðri

Eldfjallaeyja í Norður-Atlantshafi, þar sem kaldir vindar blása allan ársins hring og þyrla upp eyðilegum svörtum söndum þar sem rekaviður liggur í miklu magni. Hljómar kunnuglega. Nafn Jan Mayen heyrist oftar í umræðunni nú en áður vegna olíuleitar í hafinu á milli hennar og Íslands. Þrátt fyrir að eyjan, sem er eign Norðmanna, sé tiltölulega nálægt Íslandi sjáum við ekki… [Lesa meira]

Köll selanna á Suðurskautslandinu eins og tónlist úr geimnum

Vídjó

Vísindamaðurinn segir þýska leikstjóranum Werner Herzog frá því að á Suðurskautslandinu sé ákaflega þögult. Þegar hún vaknar um miðja nótt heyrir hún hjartað sitt slá. Hún heyrir ísinn smella og brotna. En síðast en ekki síst heyrir hún hinn undarlega söng selanna í hafinu fyrir neðan íshelluna.

 

„Við heyrum köll selanna. Það eru ótrúleg… [Lesa meira]

Þrjár dýrasögur eftir Ívan Túrgenjev

Ívan Túrgenjev (1818-1883) var einn fyrsti rithöfundur Rússlands sem hlaut alþjóðlega hylli. Hér birtast þrjár stuttar sögur um dýr eftir hann. Þýðingin birtist í tímaritinu Örkum árið 1922, en við vitum ekki hver þýddi og þiggjum ábendingar um það. Lemúrinn færði til nútímastafsetningar.

 

***

 

Apinn

 

Ég ferðaðist einu sinni með litlu gufuskipi frá Hamborg til London. Við vorum aðeins… [Lesa meira]

Kettlingur í flóttamannabúðum, 1988

Palestínskir vígamenn í flóttamannabúðum í Bourj al-barajneh í Beirút í Líbanon, árið… [Lesa meira]