Lemúrinn sagði nýlega sögur af franska fjölbragðaglímumanninum og leikaranum André the Giant, sem þekktur er fyrir leik sinn í költmyndinni The Princess Bride frá 1987 og fyrir að hafa verið einn afkastamesti bjórdrykkjumaður sögunnar. En André þessi Rousimoff tengist afmælisbarni dagsins, írska nóbelsverðlaunahafanum Samuel Beckett.
Leikskáldið Beckett keypti landskika í útjaðri Parísar á sjötta áratugnum og byggði sér þar lítið… [Lesa meira]

