Hellir á skosku eyjunni Staffa og misskilningur Jules Verne

Staffa er eyja við vesturströnd Skotlands og tilheyrir Hebrides-eyjaklasanum, sem á íslensku ganga undir nafninu Suðureyjar. Eyjunni hefur verið lýst sem „einum frægasta lítið heimsótta stað heims“.

 

Víkingar höfðu mikil umsvif á þessum eyjum á víkingaöld og þær bera margar norræn nöfn. Nafn Staffa er norrænt og mun vera komið af orðinu Stafey. Nafnið vísar til mikilla stuðlabergsmyndanna á eyjunni. Hellirinn… [Lesa meira]

Hvernig verða dýrin eftir 50 milljón ár?

Skoski náttúruvísindamaðurinn Dougal Dixon skrifaði árið 1982 bókina After Man – A Zoology of the Future. Í bókinni veltir hann fyrir sér líffræði framtíðarinnar, lífinu eftir 50 milljón ár, þegar maðurinn verði horfinn af sjónarsviðinu.

 

Álfurnar hafa færst til í floti jarðflekanna. Nýjar lendur hafa skapast með nýjum náttúruskilyrðum sem nýjar dýrategundir aðlagast með þróun og náttúruvali. Dixon telur að… [Lesa meira]

Ævintýrakastali Lúðvíks Bæjarakonungs

Neuschwanstein-kastali í Suður-Bæjaralandi í Þýskalandi. Þetta er „photochrome“ ljósmynd í lit frá í kringum 1900, tekin u.þ.b. fimmtán árum eftir að byggingu kastalans lauk í tíð Lúðvíks II… [Lesa meira]

Rætt við Auði Jónsdóttur rithöfund árið 1982

Vídjó

Auður Jónsdóttir og litla systir hennar, Rannveig Gagga Jónsdóttir, tala um afa sinn, Halldór Laxness, og fugla á Gljúfrasteini árið… [Lesa meira]

Íslandsmyndir í bók frá 1910 um norrænt handverk

Nafn Vopnafjarðar er töluverður tungubrjótur fyrir útlendinga og í bók sem ber nafnið Peasant art in Sweden, Lapland and Iceland og kom út árið 1910 er nafn þessa austfirska þorps skrifað svona af ókunnum ástæðum: Vayrnapjedwry.

 

Bókin fjallaði um norrænt handverk. Í henni voru bæði merkilegar landslagsmyndir og myndir af handverki sem sýndu í smáatriðum ýmsa muni. Smellið á myndirnar til… [Lesa meira]

Lemúrinn hitti lemúra

Lemúrar, dýrin sem veftímaritið Lemúrinn dregur nafn sitt af, búa eins og frægt er einungis á eyjunni Madagaskar við austurströnd Afríku.

 

Þó er hægt að komast í merkilegt návígi við lemúra á Norðurlöndunum. Skansen í miðborg Stokkhólms er einskonar blanda af Árbæjarsafni og dýragarði sem sérhæfir sig í skandinavískum dýrum — gaupum, elgum og fleira.

 

En þar er einnig hægt að… [Lesa meira]