Allir heita Glenn í Gautaborg

Á fótboltaleikjum í Svíþjóð er ekki óvanalegt að heyra sönginn „Alla heter Glenn i Göteborg (allir heita Glenn í Gautaborg)“. Stuðningsmenn Hammarby í Stokkhólmi byrjuðu að syngja þennan söng í úrslitaleik sænsku úrvalsdeildarinnar árið 1982 þar sem Hammarby mætti IFK Göteborg.

 

Í byrjun níunda áratugarins voru hvorki fleiri né færri en fjórir leikmenn liðsins sem höfðu nafnið Glenn að fornafni. Voru… [Lesa meira]

Ísland framandi land: Fortíðin á aldargömlum ljósmyndum Magnúsar Ólafssonar

„Fortíðin er framandi land (The past is a foreign country).“ Þetta eru upphafsorð skáldsögunnar The Go-Between frá 1953 eftir breska rithöfundinn L.P. Hartley og eru orðin að nokkurs konar málshætti. Því þessi snilldarlega en jafnframt einfalda setning fangar tilfinningar okkar þegar við hugsum um fortíðina.

 

Hér sjáum við ljósmyndir eftir meistara Magnús Ólafsson en myndir hans hafa margoft birst á Lemúrnum.… [Lesa meira]

Viðtal við leigumorðingja í Karachi

Vídjó

Tuttugu milljón manns búa í borginni Karachi í Pakistan. Þar eru mannslíf ódýr, því í borginni starfa mörg hundruð leigumorðingjar. Sumir þeirra ráða menn af dögum fyrir aðeins 700 dollara (u.þ.b. 85 þúsund krónur).

 

Hér sjáum við stutt viðtal blaðamannsins Suroosh Alvi við einn slíkan leigumorðingja. Hann segist hafa myrt 35 manns, finni enga sálarró og noti fíkniefni… [Lesa meira]

ABBA hvað? Sænska ofurgrúppan Friends in Need

Svokölluðum ofurgrúppum hefur skotið upp í gegnum popp- og rokktónlistarsöguna með reglulegu millibili. Flestar standa þær saman af mikilsvirtum og reyndum tónlistarmönnum sem lifað hafa tímana tvenna og marga fjöruna sopið. Hljómsveitir á borð við Cream, The Highwaymen eða Traveling Wilburys eru gott dæmi.

 

Þó er ein ofurgrúppa sem hefur kannski minna farið fyrir, enda var hún skammlíf og gaf aðeins… [Lesa meira]

„Sumir fúlir, aðrir glaðir“: Bob Dylan í Laugardalshöll árið 1990

Í júní árið 1990 hjólaði mjósleginn og rytjulegur maður eftir Suðurlandsbraut og beygði niður að Laugardalshöll. Við fyrstu sýn leit hann líklega út eins og róni sem flækist stefnulaust um á fararskjótanum, eins og loftsteinn sem skýst um himingeimana án áfangastaðar. En þessi steinn sem valt niður brekkuna í átt að Höllinni var enginn annar en Bob Dylan, sem kom… [Lesa meira]

„Nú er ég ekki lengur mállaus“: Myndskeið með Helen Keller

Vídjó

Flestir kannast eflaust við Helen Keller, bandarísku konuna sem árið 1904 varð fyrsta daufblinda manneskjan sem lauk háskólaprófi og varð síðan frægur rithöfundur og fyrirlesari, sósíalisti og baráttukona.

 

Í þessu sjaldséða fréttamyndskeiði frá árinu 1930 sést Keller með kennara sínum Anne Sullivan, en það var með hennar hjálp sem Keller tókst að brjótast úr viðjum… [Lesa meira]